Grunnteikning

GRT 103 Grunnteikning

Áfangamarkmið

Nemandi

  • þekki og þjálfist í upplýsingamiðlun með tæknilegum teikningum
  • þjálfist í að hugsa af nákvæmni um og vinna myndrænt með viðfangsefni starfsgreina, svo sem á sviði hönnunar og iðngreina
  • fái almennan undirbúning fyrir fagbundið teikninám og annað fagnám, svo sem á sviði hönnunar og iðngreina
  • þjálfist í notkun teikni- og mæliáhalda
  • hafi almenna undirstöðuþekkingu og færni í lestri, gerð einfaldra tæknilegra vinnuteikninga og gerð einfaldra þrívíðra teikninga
  • hafi þekkingu og færni í að teikna fríhendis
  • hafi þekkingu og færni í að skipuleggja, árita og ganga frá einföldum tæknilegum teikningum og miðla upplýsingum á skilvirkan hátt
  • fái undirbúning undir frekara nám í teiknifræðum

1. Efnisþáttur: Fallmyndun I, u.þ.b. 9/14  að umfangi áfangans

Nemandi

  • geti lesið og skilið hornrétta fallmyndum ásamt sneiðmyndum af einföldum hlutum
  • kunni gerð vinnuteikninga með teikniáhöldum af einföldum hlutum með hornréttum fallmyndum og sneiðmyndum ásamt málsetningum í tilteknum mælikvarða, skv. reglum, stöðlum og venjum
  • hafi gott vald á skipulagningu vinnublaðs, áritun með teikniskrift og frágangi einfaldra vinnuteikninga skv. reglum, stöðlum og venjum

2. Efnisþáttur: Ásmyndun og fríhendisteikning I, u.þ.b. 5/14 að umfangi áfangans

Nemandi

  • geti  teiknað ásmyndir (framskámyndir með 0°-90°-45° áshalla,  ofan-skámyndir með 60°-90°-30° áshalla og/eða samkvarðamyndir með 30°-90°-30° áshalla) með teikniáhöldum  af einföldum hlutum, skv. reglum, stöðlum og venjum, þannig að vinna megi eftir þeim
  • geti teiknað ásmyndir (framskámyndir, ofan-skámyndir og/eða samkvarðamyndir) fríhendis  á auð vinnublöð  af einföldum hlutum, skv. reglum stöðlum og venjum, þannig að vinna megi eftir þeim
  • hafi gott vald á skipulagningu vinnublaðs, málsetningu, áritun með teikniskrift og frágangi ásmynda, skv. reglum, stöðlum og venjum, þannig að vinna megi eftir þeim

Efnisatriði/kjarnahugtök
Teiknifræði, myndræn vinna, mæli- og teikniáhöld, teiknilestur, tæknilegar vinnu-teikningar, þrívíðar rissteikningar, hornrétt fallmyndun, sneiðmynd, málsetning, mæli-kvarði, skipulagning vinnublaðs, áritun teikninga, frágangur vinnuteikninga, ásmyndir.

Námsmat
Mælt er með því að lokamat samanstandi af verkefnavinnu og skyndiprófum u.þ.b. 40% og lokaprófi 60%. Miðað er við að lokanámsmat byggi að stofni til á sjálfstæðri og óháðri vinnu nemenda. Jafna mætti vægið milli frammistöðu á önn og lokaprófs í þeim tilvikum þar sem gerðar eru meiri kröfur til sjálfstæðis í námsvinnu nemenda en gert er að jafnaði.

 

 





 

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur