FRA 103 Framburður, orðaforði, menning
Áfangalýsing
Megináhersla er lögð á að kenna nemendum undirstöðuatriði tungumálsins. Færniþáttunum fjórum er sinnt jafnhliða eftir bestu getu og nemendur eru æfðir í að tala og skrifa um sjálfa sig, fjölskyldu sína, vini, áhugamál og nánasta umhverfi sitt. Einnig æfast þeir í samskiptum við ákveðnar aðstæður í daglegu lífi. Mjög mikil áhersla er lögð á framburðaræfingar studdar hlustun þar sem mikilvægt er að nemendur temji sér góðan framburð strax í byrjun frönskunámsins. Markviss uppbygging orðaforða og kennsla í málfræði fer fram með hliðsjón af samskiptamarkmiðum áfangans.
Auk kennslu í tungumálinu sjálfu er varpað ljósi á þætti sem tengjast frönskumælandi þjóðum, franskri tungu og menningu. Einnig er fjallað stuttlega um uppruna frönskunnar, útbreiðslu hennar í heiminum og hvernig hún nýtist sem alþjóðlegt samskiptamál.
Lesa meiraFRA 203 Tal, orðaforði daglegs lífs, málfræði
Áfangalýsing
Áfram er unnið að aukinni færni nemandans í hlustun, tali, lestri og ritun. Jafnhliða nýju efni er námsefni fyrri áfanga rifjað upp. Viðfangsefnin eru m.a. tengd daglegu lífi, atvinnu, ferðalögum, fríi og liðnum atburðum. Veruleg áhersla er á aukinn orðaforða, málfræði og málskilning. Nemendur eru þjálfaðir í tali og ritun í tengslum við námsefnið.
Nemendur fá fræðslu um franskt þjóðlíf, siði og venjur samhliða námsefninu.
Lesa meiraFRA 303 Samtöl, lestur, ritun
Áfangalýsing
Áframhaldandi þjálfun í hlustun, tali, lestri og ritun. Upprifjun á efni fyrri áfanga samhliða nýju efni. Umfjöllunarefni sem tengjast tómstundum, áhugamálum, ferðalögum, endurminningum og framtíðaráformum.
Nemendur nota málið til að afla sér fróðleiks um ýmis efni, t.d. með lestri nemendablaða. Lesnar eru léttlestrarbækur. Nemendur eru þjálfaðir í lestri og ritun lengri, samfelldra texta og í að segja frá liðinni og ókominni tíð í ræðu og riti. Sem fyrr eru nemendur fræddir um frönskumælandi þjóðir og menningu. Sérstök umfjöllun um frönsk málsvæði utan Evrópu.
Lesa meiraFRA 313 Fagfranska (Valáfangi)
Áfangalýsing
Áhersla á fagmál, t.d. í viðskipta- og raungreinum, samfélagsgreinum og ferðaþjónustu. Getur hentað nemendum á ýmsum brautum sem komnir eru mislangt í námi. Fer þá efnisval áfangans eftir nemendahópnum.
Lesa meiraFRA 403 Léttir bókmennta- og nytjatextar, framsögn
Áfangalýsing
Frægt fólk, fjölmiðlar, listir, bókmenntir, mismunandi heimkynni og landkynningar eru meðal viðfangsefna. Að mestu leyti er lokið við að fara yfir undirstöðuatriði franskrar málfræði. Veruleg aukning orðaforða og málskilnings auk hæfni til ritunar og tjáningar. Lesið er efni af ýmsum toga, svo sem stuttir bókmenntatextar, blaða- og tímaritsgreinar, auglýsingar og landkynningarefni. Nokkru hraðar er farið yfir námsefnið en áður. Hraðlestrar- og hlustunarefni aukið verulega og nemendur fjalla um það bæði munnlega og skriflega og gera auk þess frjáls verkefni.
Fræðsla um staðhætti og menningu sem tengist námsefninu, m.a. í formi kynninga og stuttra fyrirlestra.
Lesa meiraFRA 503 Bókmenntir, hlustun
Áfangalýsing
Áhersla lögð á lestur bókmennta og fræðslu um franska menningu. Ritað, rökrætt og skipst á skoðunum um námsefnið. Upprifjun á málfræði fyrri áfanga, kenndar nýjar tíðir sagna. Þemaverkefni um bókmenntir og menningu. Nemendur hvattir til aukins sjálfstæðis í vinnubrögðum.
Lesa meiraFRA 603 Taláfangi
Áfangalýsing
Þjálfun í talmáli. Reynt er að líkja sem mest eftir raunverulegum aðstæðum við þjálfun talmáls. Aðaláhersla er lögð á að hlusta og halda uppi samræðum þar sem persónuleiki, tjáningarþörf og skoðanir fá að njóta sín. Unnið er með hvetjandi efni sem byggir á stigvaxandi færni. Ætlast er til mikils frumkvæðis af hálfu nemenda hvort sem er við tæknilegar útfærslur verkefna eða hugmyndasmíð. Verkefni í lestri, hlustun og ritun eru eingöngu notuð þar sem þau geta ýtt undir talfærni.
Lesa meiraFRA 703 Fræðsluefni
Áfangalýsing
Áhersla lögð á fræðsluefni. Nemendur fást við fjölbreyttara og þyngra efni en áður (les-, hlustunar- og myndefni). Viðfangsefnin eru nytjatextar, svo sem blaða- og tímaritsgreinar, fræðslu- og landkynningarefni. Auk sameiginlegs námsefnis vinna nemendur verkefni til kynningar á landi eða landsvæðum. Skipst er á skoðunum um námsefnið. Þjálfun í hlustun, tali, lestri og ritun sem tengist ofangreindum viðfangsefnum. Mikið lagt upp úr sjálfstæði og skipulegum vinnubrögðum hjá nemendum.
Lesa meiraFRA 803 Þemaáfangi
Áfangalýsing
Unnið að ákveðnu þema undir handleiðslu kennara. Viðfangsefni yrði valið í samráði við kennara og eftir áhugasviði nemenda hverju sinni. Það getur verið á sviði ýmissa sérgreina, s.s. bókmennta, lista, kvikmynda, vísinda og sagnfræði. Einnig kemur til greina samþætting í frönsku og upplýsingatækni. Verkefnið getur verið einstaklingsverkefni eða unnið af tveim nemendum eða fleiri. Viðfangsefnið er skoðað frá ýmsum hliðum og krufið til mergjar. Verkefnisskil geta verið með ýmsu móti eftir samkomulagi nemenda og kennara, skrifleg og/eða munnleg, t.d. ritgerð, verkefnamappa, blaðaútgáfu, vefsíða, fyrirlestur, greinargerð, myndband eða umræðuþáttur.
Lesa meira