Franska
FRA 803 Þemaáfangi
Undanfari: FRA 703
Áfangamarkmið
Nemandi
fái þjálfun, einn eða í samvinnu við aðra, í að gera ítarlega rannsókn á ákveðnu efni
þjálfist í að gera grein fyrir niðurstöðum úr rannsóknum sínum með fjölbreytilegum hætti
nýti sér, auk hefðbundinna aðferða, upplýsingatækni og fjölmiðla til að afla sér heimilda og koma máli sínu á framfæri
Efnisatriði
Þema ákveðið. Heimilda aflað um viðfangsefnið á breiðum grunni. Unnið úr heimildum. Afrakstur og niðurstöður settar fram á þann hátt að hæfni í meðferð mismunandi miðla fái notið sín.
Námsmat
Mat á skilaverkefni er lokamat í áfanganum.