Franska

FRA 703 Fræðsluefni

Undanfari: FRA 403

Áfangamarkmið
Nemandi
haldi við færni sinni í frönskum framburði
auki enn við orðaforða sinn og geti notað hann í nýju samhengi
nýti málfræðikunnáttu sína þegar hann tjáir sig á frönsku
geti skilið aðalatriði í almennum samræðum og umfjöllun um fræðsluefni svo og í fyrirlestrum
þjálfist í að tileinka sér ýmiss konar fræðsluefni með lestri, hlustun, í fræðslumyndum og í gegnum margmiðlun
geti tekið þátt í almennum viðræðum og skrifað ýmiss konar fræðsluefni svo vel skiljist
vinni sjálfstætt verkefni um ákveðið efni, m.a. landkynningarverkefni
æfist í að miðla fróðleik meðal samnemenda

Efnisatriði
Framburði haldið við með upplestri og tali. Lesnir nytjatextar, horft á fræðslu- og kvikmyndir og fengist við þætti sem tengjast landkynningu. Skoðanaskipti um viðfangsefnin, auk skriflegrar og munnlegrar umfjöllunar um þau í einstaklings- eða hópvinnu. Kjörverkefni um landsvæði flutt í heyranda hljóði. Hlustað á franskt tal eftir föngum, t.d. af hljóðsnældum, í fræðsluþáttum, fréttum, kvikmyndum og fyrirlestrum.

Námsmat
Lokamat byggist á símati og/eða prófum í öllum færniþáttum. Eðlilegt er að verkefni unnin á önninni hafi meira vægi en í kjarnaáföngum þar sem þau eru að jafnaði viðameiri eftir því sem líður á námsferilinn.

 

 





 

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur