Franska
FRA 603 Taláfangi
Undanfari: FRA 403
Áfangamarkmið
Nemandi
geti tjáð sig skýrt og eðlilega á margvíslegan hátt á frönsku um málefni líðandi stundar
geti nýtt sér virkan orðaforða sinn á eðlilegan hátt til að tjá hugsun sína á frönsku við ólíkar aðstæður
geti tjáð sig munnlega um viðfangsefni sem hann hefur lesið um, hlustað á eða horft á
geti brugðist við upplýsingum sem honum eru veittar
Efnisatriði
Spuni út frá daglegu umhverfi og aðstæðum. Þemavinna um efni sem hafa víða skírskotun, svo sem um stórborgir, næturlíf, tónlist o.fl. Gerðir samtalsþættir, stuttir leikþættir, fréttaþættir og ferðalýsingar. Farið í leiki, þ. á m. tölvuleiki. Ljóðaflutningur, samlestur, söngur. Greining á stuttum myndskotum og hljóðupptökum úr fjölmiðlum.
Námsmat
Að miklu leyti byggt á framlagi nemandans í áfanganum, auk þess metin færni hans í tali í lok áfangans.