Franska

FRA 503 Bókmenntir, hlustun

Undanfari: FRA 403

Áfangamarkmið
Nemandi
nái góðu valdi á frönskum framburði
auki enn við orðaforða sinn og geti notað hann í nýju samhengi
fái yfirlit yfir meginatriði franskrar málfræði
geti skilið aðalatriði í almennum samræðum og umfjöllun um efni sem tengjast bókmenntum og menningu
geti tileinkað sér efni bókmennta og efni um franska menningarþætti í gegnum kvikmyndir og með lestri og hlustun
þjálfist í að afla sér fróðleiks um ýmis önnur efni, t.d. í gegnum margmiðlun
geti tekið þátt í almennum viðræðum og skrifað um almenn efni, svo og efni sem tengjast bókmenntum og menningu þannig að vel skiljist
lesi franska bókmenntatexta og vinni þemaverkefni um bókmenntir og/eða einn eða fleiri þætti úr franskri menningarsögu

Efnisatriði
Framburður þjálfaður með tali og upplestri. Upprifjun á málfræði, bætt við nýjum samsettum tíðum og "passé siple". Nemendur lesa bókmenntaverk, horfa á kvikmyndir og fást við þætti sem tengjast frönskumælandi löndum og menningu þeirra í sem víðustum skilningi. Skrifleg og munnleg umfjöllun um viðfangsefnin. Nemendur vinna þemaverkefni og flytja þau fyrir aðra nemendur í hópnum. Hlustað á franskt tal eftir föngum, t.d. í fræðsluþáttum, fréttum, kvikmyndum og fyrirlestrum.

Námsmat
Í áfanganum er æskilegt að meta alla færniþættina fjóra, þ.e. hlustun, tal, lestur og ritun. Vægi þáttanna fer eftir mikilvægi þeirra í kennslunni. Hluti af lokamati getur byggst á verkefnum og könnunum á önninni.
Eðlilegt er að símat fái aukið vægi í þessum áfanga. Lesskilning, ritfærni og málfræðikunnáttu má meta með skriflegu prófi í annarlok, skilning á mæltu máli með hlustunarkönnunum á önninni og/eða hlustunarprófi í lokin og munnlega færni með talæfingum, flutningi fyrirlestra á önninni og/eða munnlegu prófi í annarlok.

 

 





 

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur