Franska

FRA 403 Léttir bókmennta- og nytjatextar, framsögn

Undanfari: FRA 303

Áfangamarkmið
Nemandi
nái skýrum framburði, eðlilegu hljómfalli og blæbrigðum í upplestri og tali
auki orðaforða sinn svo um munar, læri m.a. orðaforða sem viðkemur bókmenntum, listum, fjölmiðlum, heimboðum og landkynningum
styrki málfræðigrunn sinn og læri skildagatíð ("conditionnel"), skilyrðissetningar, óbeina ræðu, þolmynd, viðtengingarhátt og fleiri aðferðir til að mynda spurningar
skilji samhengið í samfelldu mæltu máli þegar talað er um efni sem hann þekkir
geti náð aðalatriðum úr samfelldu ritmáli um þekkt efni bæði úr nytjatextum og bókmenntatextum
geti tjáð sig við allar algengar aðstæður um þemu áfangans og efni þeim skyld svo vel skiljist, geti m.a. kynnt Ísland sem ferðamannaland
geti skrifað ýmsar gerðir texta, allt frá leiðbeiningum, skilaboðum, umsóknum og bréfum til samfelldra ritsmíða um efni sem hann þekkir vel
fái innsýn í franskar bókmenntir, listir, vísindi, fjölmiðlaheim, kynnist frægum frönskumælandi persónum og ferðamannastöðum, fræðist um tengsl Íslands og Frakklands

Efnisatriði
Tal og upplestur. Æfingar í orðmyndun, samheitum, andheitum og frönskum orðskýringum. Nemendur æfast í að setja skilyrði, varpa fram tilgátum og hafa ummæli eftir öðrum. Lesnar ýmsar gerðir af textum, bæði bókmennta- og nytjatextum. Umræður um námsefnið í pörum og/eða hópum auk þess sem nemendur halda stuttar kynningar, t.d. á frægu fólki, skáldverkum, málverkum eða löndum. Ritunarverkefni með hliðsjón af námsefni, t.d. persónulýsingar, deili á höfundum, gagnrýni, endursagnir og frjáls ritun. Skyggnst inn í heim franskra bókmennta, lista og fjölmiðla og svipast um á vinsælum ferðamannastöðum.

Námsmat
Í áfanganum er æskilegt að meta alla færniþættina fjóra, þ.e. hlustun, tal, lestur og ritun. Vægi þáttanna fer eftir mikilvægi þeirra í kennslunni. Hluti af lokamati getur byggst á könnunum og verkefnum á önninni.
Eðlilegt er að símat fái aukið vægi í þessum áfanga. Lesskilning, ritfærni og málfræðikunnáttu má meta með skriflegu prófi í annarlok, skilning á mæltu máli með hlustunarkönnunum á önninni og/eða hlustunarprófi í lokin og munnlega færni með talæfingum, flutningi fyrirlestra á önninni og/eða munnlegu prófi í annarlok.

 

 





 

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur