Franska

FRA 303 Samtöl, lestur, ritun

Undanfari: FRA 203

Áfangamarkmið
Nemandi
fái betri tilfinningu fyrir framburði og hljómfalli tungumálsins og geti greint blæbrigði
læri orðaforða sem tengist áhugamálum, ferðalögum, frásögnum af liðinni tíð og áformum, auk orðaforða sem nauðsynlegur er til skoðanaskipta og ráðlegginga
læri þátíð ("imparfait") og framtíð sagna ("futur proche"/"futur simple"), muninn á "imparfait" og "passé composé". Auk þess fornöfnin "en" og "y", óákveðin fornöfn, tilvísunarfornöfn og stigbreytingu lýsingarorða
geti náð aðalatriðum þegar talað er um kunnuglegt efni og skilið frásagnir í nútíð, þátíð og framtíð
geti aflað sér fróðleiks um ýmis áhugamál með lestri blaða, bóka eða efnis á Netinu
geti tjáð sig um þemu áfangans, látið í ljós skoðanir og óskir, greint frá ætlunum, lýst atburðum, persónum og aðstæðum
geti m.a. skrifað sendibréf og einföld opinber bréf, samfelldar frásagnir í nútíð og þátíð, lýsingar á aðstæðum og fólki, samið æviágrip
geti gert samanburð, gefið álit og ráð, beðið skriflega um upplýsingar, svarað upplýsingabeiðni
fræðist nokkuð um frönsk málsvæði utan Evrópu svo og um ýmsa þætti í franskri menningu, t.d. vísindi, bókmenntir, listir, íþróttir og annað fréttatengt efni

Efnisatriði
Framburður og hljómfall æft með upplestri, tali og endurtekningum. Orðaforðaæfingar með aðstoð ýmissa uppflettirita, t.d. orðabóka, kennsluforrita og geisladiska. Málfræðiatriði: þátíð, framtíð, stigbreyting, fornöfnin "en" og "y", óákveðin fornöfn og tilvísunarfornöfn. Lesskilningur þjálfaður með ýmsum aðferðum, t.d. röðun í tímaröð, (fjölvals)spurningum, þýðingum og stuttum endursögnum. Þjálfun í mismunandi lestraraðferðum, s.s. hraðlestri, leitarlestri o.fl eftir eðli textanna og tilgangi með lestrinum. Talæfingar í para- eða hópvinnu. Nemendur ímynda sér ákveðnar aðstæður, mynda sér skoðanir á efninu og deila þeim með öðrum. Einnig semja þeir lýsingar og frásagnir skriflega og/eða munnlega. Nemendur vinna stutt þemaverkefni um frönskumælandi svæði eða einstaka menningarþætti sem þeir deila síðan með öðrum nemendum í hópnum.

Námsmat

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur