Franska
FRA 203 Tal, orðaforði daglegs lífs, málfræði
Undanfari: FRA 103
Áfangamarkmið
Nemandi
nái betra valdi á frönskum framburði, sérstaklega röddun samhljóða og tengingum, og geti nýtt sér alþjóðlega hljóðritunarkerfið til að tileinka sér framburð nýrra orða
læri orðaforða sem tengist daglegum athöfnum, heilsufari, samskiptum á opinberum stöðum, ferðalögum, atvinnulífi o.fl.
læri nýjar sagnbeygingar í nútíð, þátíð (passé composé), magnorð, raðtölur, persónufornöfn í andlagsfalli, nýjar forsetningar, samtengingar, m.a. tíðartengingar, miðstig o.fl.
geti skilið frönsku við daglegar aðstæður og á helstu ferðamannastöðum
geti lesið efni sem miðast við orðaforðann sem hann lærir í áföngunum FRA 103 og FRA 203
geti lýst daglegum athöfnum, greint frá atburðarás í liðinni tíð, beðið um upplýsingar og þjónustu á ýmsum opinberum stöðum og tekið þátt í samræðum um efni sem hann þekkir
geti skrifað samfellt mál um líðandi stund og liðna atburði, fyllt út starfsumsóknir og ýmis eyðublöð á ferðalögum
fræðist um ýmsa þætti í lífi Frakka, s.s. matarmenningu, ferðalög og frí, atvinnulíf, tísku, kvikmyndir, dagatal, hátíðir og árlega viðburði
Efnisatriði
Þjálfun í framburði, röddun og tengingum. Hljóðritun. Lestextar í kennslubók ásamt ýmsum lesskilnings- og orðaforðaæfingum. Samtöl í formi hlutverkaleikja um daglegt líf, innkaup, kaffi- og veitingahúsaferðir eða upplýsingar til ferðamanna. Einnig æfast nemendur í að tjá líðan, smekk og langanir. Nemendur fá tækifæri til að nota til eigin ritsmíða orðaforða og málfræði sem þeir eru að læra. Alhliða fræðsla um franska hvunndaginn og samanburður á kjörum og venjum.
Námsmat
Í áfanganum er æskilegt að meta alla færniþættina fjóra, þ.e. hlustun, tal, lestur og ritun. Vægi þáttanna fer eftir mikilvægi þeirra í kennslunni. Eðlilegt er að hluti af lokamati byggist á könnunum og verkefnum á önninni. Lesskilning, ritfærni og málfræðikunnáttu má meta með skriflegu prófi í annarlok, skilning á mæltu máli með hlustunarkönnunum á önninni og/eða hlustunarprófi í lokin og munnlega færni með talæfingum á önninni og/eða munnlegu prófi í annarlok.