FRA 103 Framburður, orðaforði, menning
Áfangalýsing
Megináhersla er lögð á að kenna nemendum undirstöðuatriði tungumálsins. Færniþáttunum fjórum er sinnt jafnhliða eftir bestu getu og nemendur eru æfðir í að tala og skrifa um sjálfa sig, fjölskyldu sína, vini, áhugamál og nánasta umhverfi sitt. Einnig æfast þeir í samskiptum við ákveðnar aðstæður í daglegu lífi. Mjög mikil áhersla er lögð á framburðaræfingar studdar hlustun þar sem mikilvægt er að nemendur temji sér góðan framburð strax í byrjun frönskunámsins. Markviss uppbygging orðaforða og kennsla í málfræði fer fram með hliðsjón af samskiptamarkmiðum áfangans.
Auk kennslu í tungumálinu sjálfu er varpað ljósi á þætti sem tengjast frönskumælandi þjóðum, franskri tungu og menningu. Einnig er fjallað stuttlega um uppruna frönskunnar, útbreiðslu hennar í heiminum og hvernig hún nýtist sem alþjóðlegt samskiptamál.
Lesa meiraFRA 203 Tal, orðaforði daglegs lífs, málfræði
Áfangalýsing
Áfram er unnið að aukinni færni nemandans í hlustun, tali, lestri og ritun. Jafnhliða nýju efni er námsefni fyrri áfanga rifjað upp. Viðfangsefnin eru m.a. tengd daglegu lífi, atvinnu, ferðalögum, fríi og liðnum atburðum. Veruleg áhersla er á aukinn orðaforða, málfræði og málskilning. Nemendur eru þjálfaðir í tali og ritun í tengslum við námsefnið.
Nemendur fá fræðslu um franskt þjóðlíf, siði og venjur samhliða námsefninu.
Lesa meiraFRA 303 Samtöl, lestur, ritun
Áfangalýsing
Áframhaldandi þjálfun í hlustun, tali, lestri og ritun. Upprifjun á efni fyrri áfanga samhliða nýju efni. Umfjöllunarefni sem tengjast tómstundum, áhugamálum, ferðalögum, endurminningum og framtíðaráformum.
Nemendur nota málið til að afla sér fróðleiks um ýmis efni, t.d. með lestri nemendablaða. Lesnar eru léttlestrarbækur. Nemendur eru þjálfaðir í lestri og ritun lengri, samfelldra texta og í að segja frá liðinni og ókominni tíð í ræðu og riti. Sem fyrr eru nemendur fræddir um frönskumælandi þjóðir og menningu. Sérstök umfjöllun um frönsk málsvæði utan Evrópu.
Lesa meiraFRA 313 Fagfranska (Valáfangi)
Áfangalýsing
Áhersla á fagmál, t.d. í viðskipta- og raungreinum, samfélagsgreinum og ferðaþjónustu. Getur hentað nemendum á ýmsum brautum sem komnir eru mislangt í námi. Fer þá efnisval áfangans eftir nemendahópnum.
Lesa meira