Félagsfræði

FÉL 503 Rannsóknarverkefni

Undanfari: FÉL 403

Áfangamarkmið
Nemandi
sýni sjálfstæði í vinnubrögðum við undirbúning, framkvæmd og úrvinnslu einfaldrar félagsfræðirannsóknar
fylgi vísindalegu rannsóknarferli við einfalda rannsókn
setji fram staðreynda-, þróunar- og samburðarspurningar auk fræðilegra rannsóknarspurninga
setji fram tilgátur um rannsóknarefni
geri raunhæfa vinnuáætlun fyrir einfalda rannsókn
afli sér fjölbreyttra skráðra heimilda, t.d. úr bókum, tímaritum, blöðum og af Netinu
afli sér heimilda með athugun, t.d. með vettvangsheimsóknum og viðtölum
vinni og leggi mat á upplýsingar úr heimildum á sjálfstæðan og gagnrýninn hátt
geri einfalda félagsfræðilega rannsókn þar sem beitt er blandaðri tækni og unnið úr henni helstu niðurstöður
geti beitt tölfræðiforritum við úrvinnslu/túlkun gagna
leggi mat á niðurstöður rannsóknarinnar út frá réttmæti og áreiðanleika gagna
fjalli á gagnrýninn hátt um rannsóknarefnið
beiti félagsfræðilegu innsæi á rannsóknarefnið
beiti viðeigandi félagsfræðilegum hugtökum og kenningum á rannsóknarefnið
kynni rannsóknarniðurstöður sínar á viðeigandi hátt, t.d. með heimasíðu, á veggspjaldi, myndbandi, bæklingi, í upplestri skýrslu og með glærum
vinni rannsóknarritgerð/skýrslu þar sem gerð er grein fyrir undirbúningi, framkvæmd, úrvinnslu og niðurstöðum rannsóknarinnar og beiti félagsfræðilegum hugtökum og kenningum á efnið
fylgi viðurkenndum reglum við gerð og frágang rannsóknarskýrslu

Námsmat
Kennari metur vinnuferlið við rannsóknina út frá athugun á þátttöku nemenda í rannsóknarvinnu, dagbók, vinnublöðum og sjálfsmati nemenda. Metin er afurð rannsóknarinnar í formi rannsóknarskýrslu og kynningar nemenda á niðurstöðum rannsóknarinnar.

 

 





 

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur