Félagsfræði

FÉL 403 Aðferðafræði

Undanfari: FÉL 3X3

Áfangamarkmið
Nemandi
skilgreini félagsfræði sem vísindagrein
skilgreini hugtökin kenning og rannsókn og greini tengsl á milli þeirra
geri grein fyrir helstu rannsóknaraðferðum, þ.e. könnun, athugun, tilraun og skráðum heimildum
meti kosti og galla helstu rannsóknaraðferða
beri saman megindlegar og eigindlegar rannsóknir og tengi við kenningar
velji rannsóknaraðferð fyrir tiltekið rannsóknarefni og rökstyðji valið
lýsi, nefni dæmi um og leggi mat á aðferðafræðileg vandamál í rannsóknum tengd réttmæti, áreiðanleika, hlutleysi og sérstöðu félagsvísinda
lýsi, nefni dæmi um og leggi mat á siðferðileg vandamál í rannsóknum tengd stöðu rannsakandans, stöðu þeirra sem rannsakaðir eru og því hvernig niðurstöður rannsókna eru notaðar
lýsi vísindalegu rannsóknarferli og beiti á valin rannsóknarefni
setji fram rannsóknarspurningar og tilgátur um valin rannsóknarefni
geri einfalda félagsfræðilega rannsókn og vinni úr henni helstu niðurstöður
vinni með tölvuforrit fyrir úrvinnslu kannana
kynni rannsóknarniðurstöður á viðeigandi hátt
leggi gagnrýnið mat á niðurstöður rannsókna sem kynntar eru í fjölmiðlum

Námsmat
Námsmat felst í skriflegu prófi, þátttöku í verkefnavinnu og vinnuferli rannsóknar sem er metið t.d. í formi dagbókar, með vinnublöðum eða athugun á vinnu nemenda. Enn fremur verður afurð rannsóknarinnar metin eins og hún birtist t.d. í formi skýrslu, heimasíðu, veggspjalds eða myndbands.

 

 





 

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur