Félagsfræði
FÉL 323 Mannfræði
Undanfari: FÉL 203
Áfangamarkmið
Nemandi
lýsi helstu hugmyndum líkamsmannfræðinnar um þróun mannsins
geri sér grein fyrir meginhugmyndum um tengsl líkamlegrar þróunar mannsins við þróun menningar og tungumáls
geti gert grein fyrir einkennum mannsins sem félags- og menningarveru
útskýri hugmyndina um aðgreiningu mannlegs tungumáls og dýramáls
leggi mat á umræðuna um þróunarhugtakið og þá gagnrýni er hefur verið sett fram varðandi líffræðilega og menningarlega þróun
geri menningarhugtakinu og helstu vandamálum þess ítarleg skil
lýsi samanburðaraðferðinni og beiti henni óhlutdrægt
lýsi vettvangsathugun og viti hvernig og hvers vegna henni er beitt
fjalli um margbreytileika þjóðlýsinga og þau vandamál er fylgja því að afla upplýsinga og að rita frambærilega þjóðlýsingu; átti sig á því að framandleikinn og kunnugleikinn eru tvær hliðar á sama máli
beiti afstæðishyggju í umræðum um menningarleg málefni og þekki til takmarkana hennar
lýsi helstu hugmyndum mannfræðinga um hvernig megi skoða forna íslenska menningu, svo sem Íslendingasögurnar og íslenskar þjóðsögur
lýsi því hvernig megi beita samanburðaraðferðinni til að útskýra hvaða þætti í nútímanum á Íslandi sé gagnlegt að rannsaka mannfræðilega
útskýri hvaða áhrif hnattvæðingin hefur á menningu, þjóðerni og rannsóknir í mannfræði
Námsmat
Námsmat er byggt á framangreindum markmiðum, að einhverjum hluta á prófi en að stórum hluta byggt á verkefnum þar sem reynir á að nemandinn sýni sjálfstæð vinnubrögð og sjálfstætt mat við samanburð á ólíkum menningareinkennum.