Félagsfræði
FÉL 313 Félagsfræði þróunarlanda
Undanfari: FÉL 203
Áfangamarkmið
Nemandi
skilgreini hugtökin þróunarlönd, vanþróuð lönd, þriðji heimurinn og Suðrið, þekki sögu þessara hugtaka og geri sér grein fyrir vandamálum við beitingu þeirra
geri sér grein fyrir mismunandi merkingu hugtaksins þróun og geti beitt hugtakinu á ólíka vegu
lýsi helstu efnahagslegum einkennum þróunarlanda
lýsi helstu stjórnmálalegum einkennum þróunarlanda
lýsi helstu menningarlegum einkennum þróunarlanda
geri sér grein fyrir margbreytileika samfélaga í Suðrinu
leggi mat á helstu hugmyndir um orsakir og afleiðingar fólksfjölgunar
lýsi breytingum sem orðið hafa á stöðu ýmissa þróunarlanda síðustu ár og áratugi
beiti kenningum um vistfræðilegar orsakir vanþróunar og geti lagt rökstutt mat á þær
beiti kenningum um nútímavæðingu og geti lagt rökstutt mat á þær
beiti kenningum um samband vanþróunar, nýlendustefnu og síðnýlendustefnu og geti lagt rökstutt mat á þær
útskýri hvernig helstu hugmyndir um orsakir vanþróunar tengjast mismunandi kenningum um þróunarmöguleika þriðja heimsins
beri saman mismunandi tegundir þróunaraðstoðar og leggi rökstutt mat á þær
lýsi sögu íslenskrar þróunaraðstoðar og umfangi hennar og taki gagnrýna afstöðu til hennar
lýsi og leggi rökstutt mat á helstu aðferðir mannfræðinga til að rannsaka samfélög í þriðja heiminum
skýri frá a.m.k. einni rannsókn mannfræðinga á samskiptum fólks í einhverju samfélagi í þriðja heiminum
Námsmat
Námsmat samkvæmt framangreindum markmiðum er annars vegar byggt á prófi og hins vegar á verkefnum þar sem reynir á að nemandinn leggi sjálfstætt mat á tiltekna umræðu um þróunarlönd.