Félagsfræði

FÉL 303 Stjórnmálafræði

Undanfari: FÉL 203

Áfangamarkmið
Nemandi
geti lýst helstu viðfangsefnum stjórnmálafræðinnar
skilgreini og beiti hugtökunum hugmyndafræði, stjórnkerfi, vald og lýðræði
greini á milli og taki rökstudda afstöðu til helstu hugmyndakerfa stjórnmálanna, svo sem byltingarsinnaðrar, umbótasinnaðrar, frjálslyndrar og íhaldssamrar hugmyndafræði
greini á milli og meti mismunandi stjórnkerfi og þekki helstu innviði þeirra
greini á milli og meti ólíkar kenningar um vald og lýðræði
lýsi þróun íslenskra stjórnmála og geti greint á milli sjálfstæðisstjórnmála og stéttastjórnmála
tengi sögu íslenskra stjórnmálaflokka við helstu hugmyndakerfi stjórnmálanna
lýsi fylgisþróun íslensku stjórnmálaflokkanna og fjalli um einkenni mismunandi kjósendahópa
geti tekið rökstudda afstöðu til helstu þátta sem nú einkenna ágreining og átök á milli og innan íslenskra stjórnmálaflokka
lýsi hugmyndinni um þrískiptingu ríkisvaldsins og útskýri hvernig hún er útfærð í íslenska stjórnkerfinu
túlki íslenska stjórnmálakerfið og stjórnmálaþátttöku í ljósi ólíkra stjórnmálafræðikenninga
lýsi áhrifum ólíkra hagsmunasamtaka í íslenskum stjórnmálum

Námsmat
Námsmat felst í prófi og þátttöku í sjálfstæðum verkefnum sem reyna á gagnrýnið mat nemenda á tilteknum efnum íslenskra stjórnmála. Markmiðin eru leiðarljós námsmatsins.

 

 





 

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur