Félagsfræði

FÉL 203 Frumkvöðlar og kenningar

Undanfari: FÉL 103

Áfangamarkmið
Nemandi
þekki til helstu frumkvöðla félagsfræðinnar og geti lýst framlagi þeirra til greinarinnar
geri grein fyrir helstu kenningum innan félagsfræðinnar
beiti félagsfræðikenningum til að skoða samfélagsleg málefni
geri sér grein fyrir félagsfræðilegu innsæi og verði fær um að beita því
skilgreini og beiti helstu hugtökum sem tengjast félagslegri lagskiptingu, svo sem stétt, stöðu og félagslegum hreyfanleika
geri sér grein fyrir helstu kenningum um lagskiptingu og beiti þeim á ólík samfélög
geri sér grein fyrir og beiti kenningum um frávik og beri saman mismunandi gerðir frávika
geri sér grein fyrir helstu tegundum afbrota og þekki viðbrögð samfélagsins gagnvart afbrotamönnum
geri sér grein fyrir orsökum fíkniefnaneyslu og skaðsemi hennar gagnvart einstaklingi, fjölskyldu og samfélagi
fjalli um ólíka boðskiptahætti, allt frá munnlegum boðskiptum til Netsins
geri sér grein fyrir kenningum um fjölmiðla og áhrif þeirra og geti útskýrt hlutverk fjölmiðla í samfélaginu
þekki kenningar um sjálfsmyndina
útskýri táknræn samskipti
geri sér grein fyrir kenningum um kynhlutverk og geti útskýrt hvernig kynhlutverk lærast gegnum félagsmótun
geti tekið þátt í umræðum um samfélagsleg málefni og myndað sér skoðanir sem byggjast á gagnrýninni hugsun
geti beitt öguðum vinnubrögðum, tekið ábyrgð á eigin námi og unnið í samvinnu við aðra
geti hagnýtt Netið til að afla sér þekkingar um félagsfræðileg viðfangsefni

Námsmat
Námsmat er að hluta til byggt á skriflegu prófi en að hluta á verkefnum og virkni í hópstarfi (t.d. á Netinu) þar sem nemendur beita félagsfræðilegum aðferðum og kenningum við að greina og útskýra samfélagsleg málefni. Báðar aðferðir eiga að sjálfsögðu að vera í samræmi við markmið áfangans.

 

 





 

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur