Félagsfræði
FÉL 103 Almenn félagsfræði
Áfangamarkmið
Nemandi
þekki til félagsvísinda og geti útskýrt helstu vinnu- og rannsóknaraðferðir félagsfræðinnar sem fræðigreinar
Nemandi
beiti einföldum tölfræðiforritum á einföld gögn, geti fengið niðurstöður og metið þær
taki þátt í umræðum um samfélagsleg málefni og myndi sér skoðanir sem byggjast á gagnrýninni hugsun
beiti öguðum vinnubrögðum, taki ábyrgð á eigin námi og geti unnið í samvinnu við aðra
noti Netið sem hjálpartæki við að afla þekkingar um félagsfræðileg viðfangsefni
þekki helstu hugtök sem tengjast félagsmótun
útskýri hvernig félagsmótunaraðilar (þar á meðal menningarkimar) hafa áhrif á og móta einstaklinginn
greini grunnþætti menningar og mikilvægi hennar fyrir einstaklinginn og samfélagið
skilgreini hvað er líkt og ólíkt með mismunandi menningarheimum í eigin samfélagi og öðrum samfélögum
þekki til helstu trúarbragða heims og geti útskýrt hlutverk þeirra og samfélagslegt gildi
safni saman upplýsingum um menningarlegan mun, flokki þær og setji fram
þekki til orsaka kynþáttafordóma og annarrar mismununar
lýsi mismunandi samfélagsgerðum
beri saman fjölskyldur og fjölskyldugerðir, fjalli um hlutverk þeirra fyrr og nú og þekki til helstu réttinda og skyldna sem fylgja mismunandi sambúðarformi
lýsi jákvæðum hlutverkum fjölskyldunnar en einnig vandamálum í umhverfi hennar
Vinnumarkaðurinn
geri sér grein fyrir atvinnumarkaði hér á landi og hvaða þættir geta haft áhrif á hann og hverjar afleiðingarnar gætu verið
geti lýst þróun atvinnumarkaðar og atvinnuskiptingar hér á landi
þekki til helstu orsaka og afleiðinga atvinnuleysis og ræði leiðir til úrbóta
fjalli um jafnrétti á vinnumarkaði
þekki til helstu hagsmunasamtaka á íslenska vinnumarkaðinum og hlutverks þeirra
geti lýst gangi mála í kjaradeilum
Stjórnmál
geri sér grein fyrir uppbyggingu íslenska stjórnkerfisins
lýsi einkennum smáríkja, útskýri þjóðarétt og lýsi valdi og valdbeitingu í samskiptum þjóða
þekki helstu alþjóðlegar stofnanir og samtök, svo sem Sameinuðu þjóðirnar og Evrópusambandið, og geti lýst uppbyggingu þeirra, áhrifum og völdum
geri grein fyrir alþjóðlegum átökum og samvinnu
fjalli um milliríkjaviðskipti og afleiðingar viðskiptahindrana
Námsmat
Námsmat er tvíþætt. Annars vegar er um skriflegt próf að ræða sem byggist á framangreindum markmiðum. Hins vegar er símat sem byggist á verkefnavinnu (munnlegum/skriflegum verkefnum) nemenda á önninni, sömuleiðis í samræmi við markmið áfangans.