Enska

ENS 102 Lestur, hlustun, málfræði I

Áfangalýsing

Nemendur eru þjálfaðir í undirstöðuatriðum enskrar málnotkunar. Áhersla er lögð á að nemendur lesi fjölbreytilega texta. Áhersla er á markvissar hlustunaræfingar og æfingar í ensku talmáli, m.a. í tengslum við lestrar- og hlustunarefni. Áhersla er lögð á að byggja upp hagnýtan og virkan orðaforða. Skriflegi þátturinn er þjálfaður með fjölbreyttum æfingum í takt við skilgreinda færni og málnotkunaratriði sem stefnt er að í áfanganum. Kennd eru undirstöðuatriði í notkun orðabóka.

Lesa meira
 

ENS 103 Málfræði og orðaforði

Áfangalýsing

Í beinu framhaldi af námi í grunnskóla eru undirstöðuatriði enskrar málfræði, sérstaklega þau atriði sem reynast íslenskum nemendum erfið, rifjuð upp í efnislegu samhengi við aðra þætti námsins. Áhersla er lögð á vandlegan lestur texta með það fyrir augum að byggja upp virkan og hagnýtan orðaforða. Hraðlesið efni valið við hæfi nemenda. Markvissar hlustunaræfingar. Enskt talmál æft m.a. í tengslum við lestrar- og hlustunarefni. Skriflegi þátturinn þjálfaður með fjölbreyttum æfingum í tengslum við þá efnisflokka sem unnið er með. Nemendum leiðbeint í notkun orðabóka.

Lesa meira
 

ENS 192 Upprifjun á almennri braut - fornámi I

Áfangalýsing
Námsefni grunnskóla rifjað upp eftir því sem þurfa þykir. Áhersla lögð á undirstöðuatriði í málfræði, framburð og skilning á hæfilega þungu tal­ og ritmáli með lestri og hlustun og ýmiss konar æfingum, svo sem stílum, myndstílum, æfingum unnum úr lestextum og hlustunaræfingum.
 

ENS 193 Undirbúningsáfangi fyrir frekara nám

Áfangalýsing
Námsefni grunnskóla rifjað upp eftir því sem þurfa þykir. Áhersla lögð á undirstöðuatriði í málfræði, framburð og skilning á hæfilega þungu tal­ og ritmáli með lestri og hlustun og ýmiss konar æfingum, svo sem stílum, myndstílum, æfingum unnum úr lestextum og hlustunaræfingum. Lesa meira
 

ENS 202 Lestur, hlustun, málfræði II

Áfangalýsing

Í áfanganum eru gerðar kröfur til sjálfstæðra vinnubragða. Nemendur þjálfast í að lesa margvíslega texta og vinna með orðabók þar sem það á við. Áhersla er lögð á talþjálfun og hlustunaræfingar. Leitast er við að byggja upp og auka við hagnýtan orðaforða með margvíslegum æfingum á öllum færnisviðum. Enskt talmál er æft, m.a. í tengslum við les- og hlustunarefni. Í skriflega þættinum er gerð krafa um agaða setningaskipan, námkvæmari orðaforða og skipulega framsetningu.

Lesa meira
 

ENS 203 Lestur, hlustun, orðaforði

Áfangalýsing

Gerðar eru meiri kröfur til sjálfstæðra vinnubragða en í ENS 103. Lestur almennra og sérhæfðra texta sem ekki eru einfaldaðir. Unnið með orðabók þar sem það á við. Aukin áhersla á að nemendur tjái sig frjálst og óbundið. Markvissar hlustunaræfingar. Áhersla lögð á að byggja upp og auka við hagnýtan orðaforða með margvíslegum æfingum á öllum færnisviðum. Enskt talmál æft, m.a. í tengslum við les- og hlustunarefni. Í skriflega þættinum er gerð krafa um flóknari setningaskipan, nákvæmari orðaforða og skipulegri framsetningu en í fyrri áfanga.

Lesa meira
 

ENS 212 Lestur, hlustun, málfræði III

Áfangalýsing

Í áfanganum er gert ráð fyrir því að nemendur geti unnið nokkuð sjálfstætt, hvort heldur í hópum eða að einstaklingsverkefnum. Almennir og sérhæfðir textar eru lesnir, t.d. textar sem snerta fagsvið nemenda. Nemendur vinna með orðabækur og ýmis hjálpargögn, svo sem gagnasöfn í tölvum, á Netinu og í uppflettiritum. Byggt er á markvissum hlustunar- og talæfingum sem miða að því að auka tjáskiptafærni nemenda og auka hagnýtan orðaforði í frekara námi eða starfi. Í skriflega þættinum eru unnin hagnýt verkefni og áhersla er lögð á skipulega framsetningu, skiptingu í efnisgreinar og markvissa málnotkun.

Lesa meira
 

ENS 292 Upprifjun á almennri braut - fornámi II

Áfangalýsing
Markmiðið með áfanganum er að nemendur hafi rifjað upp og náð nægilega góðu valdi á undirstöðuatriðum í málfræði, ritun, framburði og skilningi til að hefja enskunám á öðrum brautum.
 

ENS 303 Flóknir textar, bókmenntir

Áfangalýsing

Áhersla á að nemendur verði vel læsir á flóknari texta en áður og geti áttað sig á dýpri merkingu þeirra (geti "lesið á milli línanna"). Lesin eru bókmenntaverk og túlkuð út frá víðara samhengi en áður með tilliti til sögu og bókmenntalegra skírskotana. Lögð er áhersla á að nemendur verði færir um að tjá hugsun sína skýrt í ræðu og riti og geti rökstutt skoðanir sínar. Nemendur fá þjálfun í að vinna að viðameiri verkefnum þar sem efnis er leitað á bókasöfnum, á Netinu og í margmiðlunarefni. Markviss kynning á menningu enskumælandi landa. Áhersla er lögð á alhliða færni í málinu.

Lesa meira
 

ENS 403 Fagorðaforði, öflun upplýsinga

Þar sem nemendafjöldi er nægur væri æskilegt að skipta hópum eftir mála- og félagsfræðabraut svo að kennslan verði markvissari og betur sniðin að þörfum nemendanna.

Félagsfræðabraut - áfangalýsing

Áhersla lögð á fjölbreytilega texta, t.d. greinar úr fagbókum og -tímaritum og rannsóknarskýrslur. Lesin eru bókmenntaverk sem fjalla um félagsleg málefni. Sérstök áhersla á fagorðaforða og kynningu á skýrslugerð í félagsvísindum. Lögð er áhersla á að nemendur verði færir um að tjá hugsun sína skýrt í ræðu og riti, geti rökstutt skoðanir sínar og tileinkað sér fagorðaforða. Áhersla lögð á sjálfstæð vinnubrögð nemenda, m.a. við öflun upplýsinga á bókasöfnum, Neti og í margmiðlunarefni.

Málabraut - áfangalýsing
Áhersla lögð á aukna fjölbreytni í lestrarefni, t.d. bókmenntaverk, tímarit og dagblöð. Áhersla á aukna færni í bókmenntafræðilegri greiningu. Sérstök áhersla á skipulega framsetningu hugmynda í rituðu og töluðu máli. Kynning á menningu enskumælandi landa. Aukin áhersla á sjálfstæð vinnubrögð nemenda, m.a. við öflun upplýsinga á bókasöfnum, Netinu og í margmiðlunarefni.

Lesa meira
 

ENS 503 Ritun, ólík afbrigði ensku

Áfangalýsing

Áfram skal byggja á því sem gert hefur verið í fyrri áföngum. Sérstök áhersla er lögð á ritun. Auk þess verður unnið með ensku sem alþjóðamál og algengustu afbrigði málsins eftir búsetu, menntun og stétt. Lestextar, hlustunar- og myndbandsefni ættu að endurspegla með sem bestum hætti menningu og mannlíf ólíkra málsvæða og sýna fjölbreytileika hinnar ensku tungu. Hér má t.d. hugsa sér smásögur, blaðagreinar, ljóð, tónlist, kvikmyndir o.fl. frá ýmsum enskumælandi löndum. Mikilvægt er að tryggja virkni nemandans í kennslustundum.

Lesa meira
 

ENS563 Yndislestur

ENS 563, also called “yndislestur” or ‘Reading for Pleasure’, is intended to give advanced students the opportunity to read and explore a diverse range of both classical and modern  literary texts according to a book list provided by FSN.   There are no formal lessons in ENS 563 but students are expected to use their time productively as they have to read 6 novels from the list, 3 in each half-semester. Progress is evaluated through formal interviews on each book with the ENS 563 teacher as well as the submission of a literary essay on one of the novels.

 

 

ENS 563, einnig nefnt „yndislestur” eða  „Reading for Pleasure” er ætlað að gefa nemendum sem lengra eru komnir í námi möguleika á að kynnast fjölbreyttu úrvali klassískra- og nútímabókmennta samkvæmt bókalista sem fæst hjá kennara. Það eru engar formlegar kennslustundir í ENS 563, en nemendur verða að nýta tímann vel þar sem þeir þurfa að lesa sex bækur af bókalistanum, þrjár í hvorri lotu. Námsmat fer fram með viðtali við kennara um hverja bók ásamt ritgerð um eina þeirra.

Lesa meira
 

ENS 603 Bókmenntasaga, markviss málnotkun

Áfangalýsing

Mikilvægt er að vinna áfram með þá færni sem nemendur hafa tileinkað sér í fyrri áföngum og leggja áherslu á alla færniþætti í náminu. Áfram er unnið að því að gera málnotkun nemenda markvissari og fágaðri. Í þessum áfanga mætti leggja áherslu á enska málsögu og uppbyggingu og þróun málsins. Auk þess ágrip af enskri bókmenntasögu með það fyrir augum að nemendur geti tekist á við lestur texta frá ólíkum tímabilum.

Lesa meira
 

ENS 703 Sérhæfð verkefni

Áfangalýsing

Í þessum áfanga mætti leggja áherslu á þemavinnu af ýmsu tagi og/eða sérhæfð verkefni þar sem gerðar eru auknar kröfur um sjálfstæð vinnubrögð nemandans. Hér er svigrúm til að nýta sérhæfingu eða áhugasvið kennarans og fara að óskum nemenda. Sem dæmi má nefna skapandi skrif, bækur og kvikmyndir, bókmenntatímabil, verk eftir ákveðna höfunda, daglegt mál, útgáfu tímarits, gerð myndbanda, tónlist, þýðingar, fagmál o.fl.

Lesa meira
 

ENS 803 Munnleg og skrifleg tjáning

Áfangalýsing

Lögð er áhersla á lestur mjög krefjandi texta, t.d. frá ólíkum tímabilum eða stefnum. Líkt og í ENS 703 hentar þessi áfangi vel til þemavinnu. Gerðar eru miklar kröfur um færni í munnlegri og skriflegri tjáningu. Lögð er áhersla á að nemendur æfist í að túlka upplýsingar, draga ályktanir, gera grein fyrir máli sínu og rökstyðja skoðanir sínar. Mikilvægt er að nemendur taki virkan þátt í kennslustundum.

Lesa meira
 

 





 

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur