Enska
ENS 193 Undirbúningsáfangi fyrir frekara nám
Áfangalýsing
Undanfari: enginn
Áfanginn er ætlaður nemendum á almennri braut sem hafa ekki staðist þær kröfur sem settar eru um nám í framhaldskóla.
Markmið áfangans eru að nemandi:
- Nái tökum á grundvallarþekkingu í enskri málfræði
- Þjálfist í lestri á enskum texta og efli lesskilning og orðaforða
- Lærir að nota orðabækur og önnur hjálpartæki við úrvinnslu verkefna
- Kynnist vinnubrögðum sem hann þarf að tileinka sér við áframhaldandi framhaldsnám
Námsfyrirkomulag:
- Nemendur lesa texta og vinna úr þeim verkefni
- Nemendur þjálfast í málfræði með vinnu í málfræðiforriti (LEI)
- Nemendur halda leiðarbækur út önnina
- Námsmat
- Í áfanganum er fyrst og fremst leitast við að nota leiðsagnarmat í þeim tilgangi að nemandi fái upplýsingar um eigin styrkleika ásamt leiðbeiningum um hvernig hann getur bætt frammistöðu sína.
- námsmat í áfanganum getur verið margvíslegt t.d. kennaramat, jafningjamat eða sjálfsmat. Matið getur byggst á könnunum, munnlegum verkefnum, skriflegum verkefnum einstaklings eða hópa.