Enska
ENS 212 Lestur, hlustun, málfræði III
Undanfari: ENS 202
Áfangamarkmið
Lestur
Nemandi
lesi almenna og sérhæfða texta á sjálfstæðan hátt
geti beitt mismunandi lestraraðferðum, þ.e. nákvæmnislestri, yfirlitslestri, hraðlestri og leitarlestri og viti hvenær hvaða lestraraðferð er viðeigandi
sé fær um að notfæra sér mismunandi hjálpargögn við lestur eftir því hver tilgangurinn er með lestrinum
Hlustun
Nemandi
geti náð megininntaki úr ótextuðu sjónvarpsefni/myndefni/ margmiðlunarefni og útvarpsefni (t.d. fréttum, fræðsluþáttum) þar sem talað er með mismunandi hreim
geti fylgst með og skilið megininntak orðræðu þegar fjallað er um nokkuð sérhæft efni sem hann þekkir og tengist þeim efnisflokkum sem fengist hefur verið við í áfanganum
Tal
Nemandi
geti óhikað tjáð sig um algengustu aðstæður í daglegu lífi
geti gefið til kynna virka hlustun með viðeigandi smáorðum eða upphrópunum og geti notað hikorð á viðeigandi hátt
geti notað þann orðaforða sem unnið hefur verið með í efnisflokkum áfangans til að tjá eigin hugsun og skoðanir, t.d. á starfsvettvangi
Ritun
Nemandi
geti tjáð sig skriflega á skipulegan hátt í samfelldu máli, t.d. 40-60 línur eða í lengra máli
hafi náð tökum á grundvallaratriðum í framsetningu ritaðs máls, þ.e.a.s. upphafi, miðju, endi, röksemdafærslu og skiptingu í efnisgreinar
sýni skapandi notkun þess orðaforða sem unnið hefur verið með á viðeigandi hátt eftir aðstæðum
geri sér grein fyrir mikilvægi hjálpargagna við ritun, svo sem orðabóka og leiðréttingarforrit
Málfræði
Í samræmi við markmið áfangans eru nemendur m.a. þjálfaðir í eftirtöldum málfræðiatriðum.
Nemandi
þekki þolmynd og germynd
kunni notkun sagnanafnorða og/eða nafnháttar með ákveðnum sögnum
kunni að mynda sambandssagnir
þekki helstu forsetningar
kunni helstu orðflokka og myndun orða
þekki röð lýsingarorða
kunni beina og óbeina ræða
þekki háttarmyndandi sagnir
kunni tilvísunarsetningar og skilyrðissetningar
Námsmat
Við námsmat skal ávallt taka mið af þeirri vinnu sem nemendum er ætlað að inna af hendi samkvæmt námsáætlun og kröfur eru gerðar í samræmi við það. Meta skal alla færniþætti í réttu hlutfalli við vægi þeirra í áfanganum. Nemendum skal alltaf gert ljóst hvað verið er að meta, hvernig, hvenær og hvers vegna. Námsmat getur verið í formi símats eða lokamats.
Dæmi um mat á færniþáttum
Lestur
Formleg og óformleg prófun eða könnun á lesskilningi, svo sem krossapróf, eyðufyllingar, spurningar út texta og ritun útdrátta. Ólesnir textar eru valdir með tilliti til þess orðaforða og þeirra efnisþátta sem fjallað hefur verið um í áfanganum.
Hlustun
Mikilvægt er að gera hlustunarpróf þannig úr garði að þau mæli sem best hlustunarskilning en ekki stafsetningu eða málfræði. Dæmi um prófverkefni: hlusta í ákveðnum tilgangi og eftir tilteknum efnisatriðum, svara skilningsspurningum, fylla í eyður (orð eða orðasambönd). Gerð grein fyrir því sem hlustað hefur verið á í stuttu máli, ýmist skriflega eða munnlega.
Tal
Samtal tveggja (ef til vill upptaka) um tiltekið efni við vissar aðstæður (8-10 mínútur) sem undirbúnar hafa verið í kennslunni. Þá er metin m.a. lengd samtals, innihald, flæði, orðaforði, framburður, upphaf og endir. Um getur verið að ræða frásögn einstaklings um kvikmynd, bók, áhugamál, tiltekið efni eða þema, o.s.frv.
Ritun
Meta skal innihald og framsetningu ritaðs máls, orðanotkun og setningaskipan, stafsetningu og málfræði. Skapandi notkun málsins, viðeigandi málnotkun eftir innihaldi og aðstæðum er einnig metin. Gefa skal ábendingar um villur og gefa nemendum tækifæri á að leiðrétta eftir leiðréttingarlykli.
Málfræði/orðaforði/málnotkun
Hægt er að prófa með ýmsum hætti. Stefnt skal að því að hafa prófverkefni eins fjölbreytileg og hægt er, t.d. eyðufyllingar með vali, beinar eyðufyllingar, að setja sagnir inn í texta í réttri mynd, frásagnir í mismunandi tíðum og umorðun/endurritun setninga án þess að merking raskist. Æskilegt er að prófin reyni sem mest á skapandi málnotkun nemandans.