Enska
ENS 102 Lestur, hlustun, málfræði I
Áfangamarkmið
Lestur
Nemandi
geti lesið margvíslega texta, t.d. bókmenntir, almennt efni í tímaritum- og blöðum, texta af Netinu
geti notað orðabækur sér til gagns til að komast að merkingu orða og notkun þeirra
þjálfist í að beita mismunandi lestarlagi eftir aðstæðum
Hlustun
Nemandi
geti hlustað á margvíslegt efni, dregið út upplýsingar og tileinkað sér ný orð
Tal
Nemandi
geti tekið þátt í almennum samræðum á ensku, t.d. innan kennslustofunnar við skólafélaga, kennara og aðra af kurteisi og með viðeigandi orðalagi
geti sagt frá sjálfum sér og nánasta umhverfi, áhugamálum, o.s.frv.
geti notað grunnorðaforða, sem fengist hefur verið við í áfanganum, á eigin forsendum í nýju samhengi
Ritun
Nemandi
geti skrifað stuttan texta og sett saman skilaboð þar sem fylgt er eftir grunnreglum réttritunar og málfræði
geti notað orðabækur og önnur hjálpargögn við ritun
geti hagnýtt sér orðaforða sem hann hefur tileinkað sér á skapandi hátt
Málfræði
Nokkur grundvallaratriði enskrar málfræði til upprifjunar.
Nemandi
kunni ákveðinn og óákveðinn greini
þekki óreglulegar sagnir
kunni algengustu tíðir sagna
þekki samband frumlags og umsagnar
kunni að mynda sambandssagnir
þekki fornöfn (sérstaklega tilvísunar-, eignar, og afturbeygð fornöfn)
þekki forsetningar
kunni stigbreytingu lýsingarorða
Námsmat
Við námsmat skal ávallt taka mið af þeirri vinnu sem nemendum er ætlað að inna af hendi samkvæmt námsáætlun og kröfur eru gerðar í samræmi við það. Meta skal alla færniþætti í réttu hlutfalli við vægi þeirra í áfanganum. Nemendum skal alltaf gert ljóst hvað verið er að meta, hvernig, hvenær og hvers vegna. Námsmat getur verið í formi símats eða lokamats.
Dæmi um mat á færniþáttum
Lestur
Formleg prófun eða könnun á lesskilningi. Ólesnir textar eru valdir með tilliti til þess orðaforða og þeirra efnisþátta sem fjallað hefur verið um í áfanganum. Dæmi um prófverkefni: krossapróf, eyðufyllingar, svör við spurningum úr texta, endurröðun efnisgreina sem hefur verið ruglað, að bæta inn setningum/orðum sem hafa verið fjarlægð úr texta, o.s.frv.
Hlustun
Mikilvægt er að gera hlustunarpróf þannig úr garði að þau mæli sem best hlustunarskilning en ekki stafsetningu eða málfræði. Dæmi um prófverkefni: hlusta eftir tilteknum efnisatriðum (t.d. gera lista), hlusta í ákveðnum tilgangi, fylla inn upplýsingar eftir upplestri (orð eða orðasambönd), svara skilningsspurningum og merkja inn á kort.
Tal
Meta skal skipulag/framsetningu, orðaforða, framburð, flæði (fluency) og tjáskiptahæfni. Dæmi um prófverkefni: samtal tveggja nemenda, t.d. samvinna við lausn þrauta, spjall um bækur eða kvikmyndir, spurningar og svör, frásögn einstaklings um áhugamál, lýsing á mynd/myndasögu.
Ritun
Símat er mikilvægt í þessum þætti. Nemendur vinna styttri ritunarverkefni af ýmsu tagi í tengslum við þann orðaforða og þá efnisþætti sem um er fjallað hverju sinni, t.d. póstkort, tölvupóst, formleg/óformleg bréf, stuttar frásagnir, lýsingar og endursagnir. Mikilvægt er að endurgjöf og ábendingar berist nemandanum skjótt og séu uppbyggilegar. Leggja skal áherslu á skapandi notkun þess orðaforða sem ætlast er til að nemendur hafi tileinkað sér.
Málfræði/orðaforði/málnotkun
Hægt að prófa með ýmsum hætti. Stefnt skal að því að hafa prófverkefni fjölbreytileg, t.d. eyðufyllingar með vali, beinar eyðufyllingar, að setja sagnir inn í texta í réttri mynd, frásagnir í mismunandi tíðum, umorðun/endurritun setninga án þess að merking raskist, o.s.frv. Æskilegt er að prófin reyni sem mest á skapandi málnotkun nemandans.