Enska
ENS 803 Munnleg og skrifleg tjáning
Undanfari: ENS 703
Áfangamarkmið
Nemandi
geti gert grein fyrir viðfangsefnum sínum á lipurri og hnökralausri ensku
geti kafað dýpra ofan í viðkomandi viðfangsefni og leitað fanga víðar en áður
sýni meira sjálfstæði í vinnubrögðum og geti dregið eigin ályktanir
hafi öðlast næga færni á öllum sviðum til að takast á við nám á háskólastigi, hvort sem er hér heima eða erlendis
Leiðir
Nemandi
vinni fjölbreytt verkefni í tengslum við þau þemu sem tekin eru fyrir og þar sem reynir á alla færniþættina fjóra