Enska
ENS 503 Ritun, ólík afbrigði ensku
Undanfari: ENS 403
Áfangamarkmið
Nemandi
hafi á valdi sínu helstu málfræði- og stafsetningarreglur og geti skrifað svo til hnökralausan texta
hafi kynnst ferlisritun og nýti sér aðferðir hennar við eigin vinnu
geti beitt ritmáli í mismunandi tilgangi og með mismunandi stílbrigðum
geti unnið sjálfstæða heimildaritgerð, þ.e. leitað heimilda, sett upp heimildaskrá, notað tilvitnanir og gert grein fyrir þeim og unnið úr upplýsingum
þekki mismunandi framburð enskunnar eftir heimshlutum
geri sér grein fyrir á hvern hátt búseta, menntun og stétt hefur áhrif á málnotkun
Leiðir
Nemandi
skrifi fjölbreytt ritunarverkefni, t.d. í tengslum við efnisþætti áfangans
geri a.m.k. eitt stórt heimildaverkefni þar sem kostur er gefinn á leiðréttingu og endurbótum
fái nægileg tækifæri til að hlusta á ólík málafbrigði og sé hvattur til að nýta sér þá möguleika sem gefast til að hlusta á mismunandi ensku utan skólastofunnar, t.d. í tónlist, kvikmyndum og sjónvarpi