Enska
ENS 403 Fagorðaforði, öflun upplýsinga
Undanfari: ENS 303
Félagsfræðabraut - áfangamarkmið
Nemandi
ráði yfir fagorðaforða og grunnhugtökum á sviði félagsvísinda
hafi kynnst uppbyggingu og gerð rannsóknarskýrslna
hafi fengið þjálfun í glósutækni
geti hlustað á og skilið raunefni, t.d kvikmyndir, fyrirlestra og ýmiss konar fræðsluefni
geti tjáð sig munnlega og rökrætt um sérhæft efni
geti útskýrt og umorðað og notað fagorðaforða
sé fær um að vinna að hópverkefnum
Leiðir
Nemandi
lesi faggreinar úr tímaritum og dagblöðum auk þess að horfa á myndbönd og hlusta á fyrirlestra
skrifi útdrætti, greinargerðir, ritgerðir, geri kannanir og skýrslur
hlusti á raunefni og dragi fram helstu atriði og hugtök
taki þátt í umræðum og flytji undirbúið erindi
Málabraut - áfangamarkmið
Nemandi
auki almennan orðaforða sinn og þekkingu á orðaforða og hugtökum bókmenntafræði
geti lesið og skilið fjölbreytilegt lesefni
auki færni sína við túlkun bókmenntaverka
geti tjáð sig á skipulegan, rökrænan og samfelldan hátt í rituðu og töluðu máli
geti hlustað á og skilið raunefni, t.d. fréttaþætti og ýmiss konar fræðsluefni
öðlist dýpri skilning á uppbyggingu málsins
kynnist menningu enskumælandi landa
hafi fengið þjálfun í glósutækni
Leiðir
Nemandi
lesi fjölbreytilegt efni, t.d bókmenntaverk, ýmiss konar dagblaðs- og tímaritsgreinar, sem m.a. gefa innsýn í menningarheim enskumælandi landa
skrifi ýmsa texta í mismunandi tilgangi, svo sem útdrætti, stuttar greinar, bréf, gagnrýni og ritgerðir
taki þátt í ýmiss konar umræðum og flytji undirbúið efni
hlusti á raunefni sem krefst aukins málskilnings, t.d fréttaþætti og fræðsluefni og dragi fram helstu atriði.