Efnafræði

EFN 313 Lífræn efnafræði og lífefnafræði

Undanfari: EFN 203

Áfangamarkmið
Nemandi
geti lýst sp3 -, sp2- og sp-svigrúmablöndun kolefnis
þekki einkenni helstu flokka lífrænna efna svo sem alkana, alkena, alkýna, alkóhóla, alkýlhalíða, etera, aldehýða, ketóna, karboxýlsýra og karboxýlsýruafleiðna
kunni skil á helstu þáttum IUPAC-nafnakerfisins en í því felst að
geta gefið lífrænum efnum nöfn skv. IUPAC-kerfinu
geta teiknað byggingarísómerur út frá gefnum nöfnum
þekki helstu hvörf lífrænna efna
geti teiknað mismunandi rúmísómerur
þekki hugtakið hendið (ósamhverft) kolefni en í því felst að
geta sagt til út frá teikningu hvort kolefni eru hendin eða ekki
þekkja hvort sameindir eru hendnar (ósamhverfar) eða ekki út frá mynd
þekkja Fischer-varpanir og notkun þeirra
þekki helstu einkenni í byggingu sykra en í því felst að
þekkja flokkun einsykra í D- og L-myndir
þekkja muninn á aldósum og ketósum
þekkja hringmyndir glúkósa og frúktósa
þekkja helstu tvísykrur og fjölsykrur
þekki skilgreiningu lípíða en í því felst að
þekkja hvernig fitusýrur og glýseról mynda fitur
þekkja hvernig mettun fitna hefur áhrif á eiginleika þeirra, hollustu og geymsluþol
þekki skilgreiningu á peptíðum og próteinum en í því felst að
geta gert grein fyrir helstu hlutverkum próteina
þekkja grunnbyggingu amínósýra
þekkja peptíðtengi og geta gert grein fyrir því hvernig þau myndast

Efnisatriði
Svigrúmablöndun kolefnis, helstu flokkar lífrænna efna; alkanar, alkenar, alkýnar, arómatar, alkóhól, halíð, ketónar, aldehýð, karboxýlsýrur, esterar, etear og amín. Yfirlit yfir helstu hvörf þessara efnaflokka. IUPAC-nafnakerfið, byggingarísómerur, rúmísómerur, hendin kolefni og hendnar sameindir, Fischer-varpanir. Sykrur, lípíð, prótein.

 

 





 

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur