Efnafræði

EFN 303 Rafefnafræði, sýrur og basar

Undanfari: EFN 203

Áfangamarkmið
Nemandi:
þekki helstu atriði oxunar-/afoxunarhvarfa en í því felst að
- geta lýst rafeindaflutningi í oxunar-/afoxunarhvarfi
þekkja oxara og afoxara í oxunar-/afoxunarhvarfi
þekkja samhengið milli hálfhvarfa og heildarhvarfs og geta skrifað hálfhvörf oxunar-/afoxunarhvarfs
kunna meginreglur um oxunartölur
geta notað oxunartölur til að segja til um hvaða efni oxast og afoxast í oxunar-/afoxunarhvarfi
þekki grundvallaratriði rafefnafræði en í því felst að
 - geta lýst galvaníhlöðu
 - geta skrifað hlaðskema fyrir galvaníhlöðu
 - geta lýst staðalvetnishálfhlöðu
 - geta notað staðalspennu hálfhvarfa til að reikna staðalíspennu galvaníhlöðu
þekkja tengsl íspennu galvaníhlöðu og fríorkubreytingar hlöðuhvarfsins
geta notað jöfnu Nernsts
þekkja algengar rafhlöður, svo sem brúnsteinsrafhlöður og alkalískar rafhlöður
skilja samhengi ryðmyndunar og ryðvarna við oxunar-/afoxunarferlið
geta lýst rafgreiningarhlöðu
geta framkvæmt útreikninga fyrir rafgreiningarhlöður, svo sem um samband rafstraums, tíma og magns rafgreinds efnis
þekkja spennuröð málmanna og hugtakið vetnislosandi málmur
kunni skil á sýru-/basahugtakinu og helstu atriðum sýru-/basahvarfa en í því felst að
 - þekkja hvað einkennir sýrur og basa
 - þekkja nokkrar mikilvægar sýrur og basa
 - þekkja hvað einkennir sýru-/basahvarf
 - geta fundið tilsvarandi basa sýru og öfugt
 - geta skilgreint sýrufasta og basafasta
þekkja sjálfsjónun vatns og vatnsfastann
þekkja hvaða munur er á daufum og römmum sýrum
kunna skil á hugtakinu sýrustig, pH
geta reiknað pH fyrir rammar og daufar sýrur og basa út frá sýrufasta/basafasta og formlegum mólstyrk sýrunnar/basans
þekkja virkni pH-litvísa
þekkja virkni jafnalausna
geta framkvæmt sýru-/basatítrun og unnið úr niðurstöðum hennar
geta lýst því hvernig ýmsir eiginleikar efna, svo sem rafdrægni, jónunarorka og stærð atóma, breytast þegar farið er út eftir lotukerfinu

Efnisatriði
Oxunar-/afoxunarhvörf, hálfhvörf, rafeindaflutningur og oxunartölur, oxari, afoxari. Rafefnafræði, galvaníhlöður og rafgreiningarhlöður, staðalspenna, íspenna og fríorkubreyting, ryðmyndun, ryðvarnir, sýrur og basar, rammar og daufar sýrur, sýrufasti, sýru-/basahvörf, pH, títrun, lotukerfið og lotubundnir eiginleikar, málmar, málmleysingjar.

 

 





 

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur