Efnafræði

EFN 203 Gaslögmálið og efnahvörf

Undanfari: EFN 103

Áfangamarkmið
Nemandi:
þekki gaslögmálið og hugmyndir um kjörgas og geti í því sambandi
útskýrt samband þrýstings, rúmmáls og hita fyrir kjörgas
notað gaslögmálið til að reikna rúmmál, hita og þrýsting
útskýrt hugtakið hlutþrýstingur og þekki samband hlutþrýstings, mólstyrks og heildarþrýstings
þekki helstu gerðir efnahvarfa en í því felst að
þekkja í sundur oxunar-/afoxunarhvörf, sýru-/basahvörf og fellingarhvörf
geta lokið við efnajöfnur sem lýsa efnahvörfum af þessum gerðum
geti framkvæmt útreikninga tengda massahlutföllum í efnahvörfum, fundið takmarkandi þátt, ofgnótt, afgang og nýtni
öðlist skilning á varmabreytingum í efnahvörfum en í því felst að
geta útskýrt hugtakið hvarfavarmi
geta notað lögmál Hess til að reikna hvarfavarma
þekkja hugtakið myndunarvarmi
kunni skil á helstu atriðum varðandi hraða efnahvarfa en í því felst að
geta lesið úr hraðajöfnu efnahvarfs og þekkja hugtakið hraðafasti
þekkja tengsl hvarfgangs og hraðajöfnu
geta útskýrt áhrif hita, mólstyrks og hvata á hraða efnahvarfa
þekkja hugtakið virkjunarorka og geta teiknað orkulínurit efnahvarfs
kunni skil á jafnvægishugtakinu og geti beitt jafnvægislíkingu efnahvarfs við útreikninga en í því felst að
geta ritað jafnvægislíkingu efnahvarfs og notað hana til að reikna jafnvægisfasta eða jafnvægisstyrk
þekkja áhrif ytri þátta svo sem hita, þrýstings og breytinga á mólstyrk á jafnvægisstöðu og jafnvægisfasta efnahvarfs
þekki til leysnieiginleika salta og geti í því sambandi
notað upplýsingar um leysnimargfeldi til að segja til um hvort salt er auðleyst eða torleyst
reiknað mólstyrk jóna í saltlausn út frá leysnimargfeldi

Efnisatriði
Gaslögmálið, kjörgas, kelvin-kvarði, hlutþrýstingur, oxunar-/afoxunarhvörf, fellingar, sýru-/basahvörf, efnahvörf og hlutföll, varmi í efnahvörfum, lögmál Hess og myndunarvarmi, hraði efnahvarfa, hraðajöfnur, hraðafasti og hvarfgangur. Jafnvægi í efnahvörfum, jafnvægisfasti, regla Le Chateliers, leysni salta, leysnimargfeldi.

 

 





 

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur