Efnafræði
EFN 103 Atómið og mólhugtakið
Undanfari: NÁT 123
Áfangamarkmið
Nemandi:
geti út frá staðsetningu efnis í lotukerfinu sagt til um fjölda öreinda atóma efnisins og efnafræðilega eiginleika þess en í því felst að
geta fundið öreindafjölda atóma og jóna út frá sætistölu, massatölu og hleðslu
þekkja hugtakið atómmassa og tengsl þess við samsætuhlutfall frumefnis
geta ritað rafeindaskipan atóms (sýnt bæði aðalhvolf og undirhvolf) út frá sætistölu og hleðslu
þekkja einkenni helstu flokka lotukerfisins
þekkja helstu einkenni málma og málmleysingja
geti lesið úr formúlum efnasambanda og gefið einföldum efnasamböndum efnafræðiheiti
geti stillt efnajöfnur
geti lýst efnajöfnu með orðum
geti lýst í meginatriðum helstu gerðum sterkra og veikra efnatengja
geti sagt til um hvaða gerðir sterkra og veikra efnatengja eru líklegastar til að vera ráðandi milli ákveðinna efnapara, út frá stöðu efnanna í lotukerfinu og eiginleikum þeirra
þekki mólhugtakið og geti notað það í tengslum við efnajöfnur en í því felst að
geta breytt mólum í grömm og öfugt
geta reiknað mólstyrk lausna og mólstyrk jóna í lausn
geta framkvæmt reikninga sem byggjast á mólhlutföllum efna í efnahvarfi
geti skilgreint hugtökin oxun og afoxun og þekki tengsl þeirra við rafeindaflutning
geti sýnt rafeindaflutning í einföldum oxunar-/afoxunarhvörfum
geti notað spennuröð málma til að segja til um hvort málmur sé vetnislosandi
geti skilgreint hugtökin sýra og basi og þekki tengsl þeirra við róteindaflutning
geti út frá pH-gildi sagt til um hvort efni eru súr eða basísk
Efnisatriði
Atómið og öreindir þess, sætisala, samsætur, massatala, atómmassi, gildisrafeindir, rafeindaskipan, jónir, heiti og formúlur efna, lotukerfið, flokksnúmer, lotunúmer, heiti flokka, málmar, málmleysingjar, efnahvörf, efnajöfnur, stilling efnajafna, sterk og veik efnatengi, mól, mólmassi, samband mólfjölda og massa, mólstyrkur, mólhlutföll í efnahvörfum, oxun, afoxun, spennuröð málma, sýrur, basar, sýrustig.