Danska

DAN 202 Skilningur, tjáning, menning II

Undanfari: 102

Áfangamarkmið

Lestur
Nemandi

  • geti fljótt og örugglega áttað sig á megininntaki ýmiss konar texta þótt þeir skilji ekki hvert orð
  • geti lesið og skilið inntak lengri texta svo sem bókmenntatexta eða annarra texta, sem í löngu máli fjalla um efni almenns eðlis
  • geti lesið mismunandi gerðir rauntexta, sem tengjast efnisflokkum, sér til gagns
  • lesi að minnsta kosti eina hraðlestrarbók

Hlustun

  • geti greint fyrirhafnarlítið flest lykilorð úr skilgreindum efnisflokkum
  • skilji og geta nýtt sér hagnýtar upplýsingar sem heyrast við ákveðnar aðstæður, t.d. á járnbrautarstöð, á flugvelli, í banka, á matsölustöðum og öðrum stöðum sem tengjast daglegu lífi
  • skilji einfaldar upplýsingar og leiðbeiningar sem sagðar eru á símsvara
  • geti hlustað eftir tilteknum upplýsingum í þekktum tegundum texta, t.d. fréttum, veðurlýsingum og leiðbeiningum
  • skilji samtal tveggja til þriggja manna
  • skilji smáatriði í almennum lengri frásögnum (5-7 mín.) og samtölum

Tal

  • hafi tilfinningu fyrir framburði allra hljóða, áherslum og hrynjandi málsins
  • geti tekið þátt í samræðum um tiltekin málefni
  • geti tjáð sig á þann hátt að nota bæði aðal- og aukasetningar
  • geti talað dönsku lipurlega og með það góðum framburði, hrynjandi og áherslum að vel skiljist
  • geti tjáð hugsun sína á dönsku skýrt og skilmerkilega við mismunandi aðstæður og með ólíkan tilgang í huga
  • geti útskýrt og rökstutt mál sitt um efni sem fjallað hefur verið um

Ritun

  • geti hagað orðum sínum og málfari í samræmi við efni textans hverju sinni
  • hafi vald á að skrifa nokkrar mismunandi textagerðir, t.d. minnisatriði og endursagnir
  • geti virkjað orðaforða sinn á meðvitaðan hátt með því að skrifa um efni sem unnið hefur verið með, t.d. í tengslum við ákveðin þemu
  • geti skrifað viðstöðulaust u.þ.b. 30 línur á 10 mín. um efni sem búið er að fást við (sjá kafla um upplýsingatækni)

Málfræði

  • geti í flokki sagnorða beitt
  • hjálparsögnum
  • öllum kennimyndum allra algengustu sagna
  • geti beitt óreglulegum endingum lýsingarorða

Efnisatriði – leiðardæmi

Ferðalög í Danmörku og víðar á Norðurlöndum, dægradvöl í sumarleyfi, skipulagning sumarleyfis, gisting, fæði, útbúnaður, samgöngur (hvað er líkt/ólíkt á Íslandi annars vegar og Danmörku/annars staðar á Norðurlöndum hins vegar), að vísa til vegar, peningar, bankar, bílpróf, ökuskírteini, umferðarreglur, bílakaup og  bílasala, kostnaður við bíla/vélhjól, lögregla, tegundir afbrota, neyðarhjálp, rannsóknir sakamála, íþróttir, líkamsrækt, líkaminn.

Námsmat

Námsmat tekur mið af þeirri vinnu sem nemendum er ætlað að inna af hendi samkvæmt námsáætlun og kröfur gerðar í samræmi við það. Meta skal alla færniþætti í hlutfalli við vægi þeirra í kennslunni /náminu. Nemendur eru gerðir ábyrgir fyrir mati að hluta til og þeim gerð grein fyrir því hvað verið er að meta, hvernig, hvenær og hvers vegna. Námsmat getur verið í formi símats eða lokamats.

 

 





 

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur