Danska
DAN 603 Bókmenntir, fjölmiðlar, þemavinna III
Undanfari: DAN 503
Áfangamarkmið
Nemandi
geti lesið alla texta sér til gagns
geti skilið svo til allt talað mál
geti tekið þátt í frekar formlegum samræðum sem einkenna formlegt talmál
geti tekið þátt í frekar formlegum samræðum um efni almenns eðlis eða málefni líðandi stundar
geti tjáð sig og tekið þátt í samræðum eða rökræðu um nokkuð sérhæft efni sem hann hefur sérstaklega undirbúið sig fyrir
geti skráð efnisatriði úr fyrirlestrum
geti skráð orðrétt af bandi/diski
geti samið skýrslu, rökfærsluritgerð, erindi
glími við sögugerð og ljóðasmíð (skapandi skrif)
geti skrifað formleg bréf til opinberra aðila
Efnisflokkar
Bókmenntir Norðurlanda, fréttir, rannsóknarefni.
Námsmat
Mat ætti einkum að beinast að því hvort notaður sé orðaforði við hæfi, hvort málbeiting sé í samræmi við þá getu sem krefjast má, hvort vinnubrögð séu frambærileg og loks hvort vinnuframlag sé fullnægjandi.
Þegar nemendur vinna að verkefnum sem eru mismunandi að umfangi og fjölda og beinast að þjálfun mismunandi færniþátta er æskilegt að hver nemandi haldi leiðarbók yfir vinnu sína, skrái viðfangsefni, vinnufélaga, verkaskiptingu og rökstutt mat á því sem verið er að gera. Leiðarbókin gildir þá sem hluti af annareinkunn. Að öðru leyti ættu kennari og nemendur að ákveða í sameiningu í upphafi annar hvernig mati verður háttað og hvaða kröfur verður að standast með tilliti til markmiða í námskrá. Má jafnvel hugsa sér að nemendur meti sjálfir hvaða verkefni eru lögð fram til lokamats á önninni í stað formlegra prófa.