Danska

DAN 403 Bókmenntir, fjölmiðlar, þemavinna I

Undanfari: DAN 303


Áfangamarkmið

Nemandi

geti lesið alla texta almenns eðlis (sem eðlilegt er að nemendi lesi miðað við þroska og áhuga) og ráðið við velflesta sérhæfða texta með aðstoð orðabókar
geti leitað upplýsinga á bókasöfnum eða í gagnagrunnum/-bönkum um það sem hugurinn girnist
geti talað nokkuð viðstöðulaust um dagleg málefni og tjáð sig um þau málefni sem eru til umfjöllunar hverju sinni
geti rætt við innfædda nokkurn veginn hiklaust um málefni sem hann þekkir til
geti skilið allt venjulegt talað mál, áttað sig á samhengi og inntaki þegar fjallað er um flóknari hluti og óþekkt hugtök
geti skrifað nánast rétt mál með aðstoð orðabóka, leiðréttingarforrita og uppflettirita
geti notað orðaforða sem hæfir tilefni skrifanna hverju sinni
geti skrifað tölvupóst
geti sent fyrirspurnir
geti beðið um upplýsingar um skóla, húsnæði, ferðir, gistingu, flug, lestir o.s.frv.
geti skrifað greinar og ritgerðir og skráð viðtöl

Efnisflokkar
Barnabækur, fréttir, rannsóknarefni.


Námsmat

Mat ætti einkum að beinast að því hvort notaður sé orðaforði við hæfi, hvort málbeiting sé í samræmi við þá getu sem krefjast má, hvort vinnubrögð séu frambærileg og loks hvort vinnuframlag sé fullnægjandi.

Þegar nemendur vinna að verkefnum sem eru mismunandi að umfangi og fjölda og beinast að þjálfun mismunandi færniþátta er æskilegt að hver nemandi haldi leiðarbók yfir vinnu sína, skrái viðfangsefni, vinnufélaga, verkaskiptingu og rökstutt mat á því sem verið er að gera. Leiðarbókin gildir þá sem hluti af annareinkunn. Að öðru leyti ættu kennari og nemendur í sameiningu að ákveða í upphafi annar hvernig mati verður háttað og hvaða kröfur verður að standast með tilliti til markmiða í námskrá. Má jafnvel hugsa sér að nemendur meti sjálfir hvaða verkefni eru lögð fram til lokamats á önninni í stað formlegra prófa.




 

 





 

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur