Danska
DAN 212 Skilningur, tjáning, menning III
Undanfari: DAN 202
Áfangamarkmið
Lestur
Nemandi
- geti beitt mismunandi lestraraðfeðum, þ.e. leitarlestri, yfirlitslestri, hraðlestri, námkvæminslestri og lestri stiklutexta
- geti skilið lesin texta sem fjallar um nokkið sérhæft efni, t.d. fréttir og fréttatengt efni í dagblöðum, blaða- og tímaritsgreinar, texta úr alfræðibókum og rafræna texta
- geti lesið einfalda vísindatexta sem ætlaðir eru almenningi
- geti notfært sér mismunandi hjálpargögn við lestur eftir því hver tilgangurinn er með lestrinum
- geti lesið fjölbreytta bókmenntatexta sér til gagns og ánægju
- lesi minnst tvær skáldsögur
- geti lesið stutta norska og sænska texta sem byggðir eru á orðaforða sem nemendur hafa á dönsku
Hlustun
- skilji ríkisdönsku þegar talað er skýrt og á eðlilegum hraða um þekkt efni, t.d. ýmis dægurmál eða reynslu í daglegu lífi
- skilji megininntak talaðs máls í myndefni, t.d. fréttum, kvikmyndum, samtalsþáttum og öðrum þáttum sem fjalla um þekkt efni
- geti fylgst með og skilið megininntak orðræðu þegar fjallað er um nokkuð sérhæft efni sem nemendur þekkja vel og /eða hafa áhuga á, t.d. í fyrirlestrum, kvikmyndum, útvarpsþáttum eða í sjónvarpi
- geti hlustað eftir og skilið smáatriði í efni (8-10 mín. ) sem tengjast ákveðnum efnisflokkum, hvort heldur um er að ræða einræður eða samtöl
Tal
- geti aflað sér upplýsinga um skilgreind viðfangsefni símleiðis
- geti tekið þátt í óformlegum samræðum og beitt algengum orðum og orðasamböndum sem einkenna óformlegt talmál
- hafi vald á hvatningarorðum og geta látið í ljós efasemdir við þann sem talar
- geti notað grunnorðaforða sem fengist hefur verið með í efnisflokkum á eigin forsendum í nýju samhengi
- geti tjáð sig á eðlilegum hraða og innan eðlilegra tímamarka
- geti brugðist við óvæntum aðstæðum og ólíkum viðmælendum með viðeigandi hætti
Ritun
- geti skrifað 40-50 línur í samfelldu máli um efni sem búið er að fást við
- kunni skil á reglum um uppbyggingu texta
- hafi vald á að skrifa nokkrar tegundir texta, t.d. persónuleg bréf, hálfformleg bréf, kvartanir, umsóknir og frásagnir
- kunni að beita stílbrögðum, m.a. með því að nota blæbrigði í orðavali
- geti skrifað all langan texta, t.d. 500-600 orða ritgerð, með réttri stafsetningu, þar sem beitt er ferlisritun og viðeigandi hjálpargögn hagnýtt
Málfræði
- geti beitt þolmynd sagna
- kunni að nota algeng atviksorð
- kunni skil á forsetningum í algengum orðasamböndum
- kunni að nota helstu samtengingar
- kunni skil á réttri orðaröð
- kunni að beita det/der á viðeigandi hátt
Efnisatriði - leiðardæmi
Möguleikar í atvinnulífi, atvinnuumsókn, Nordjobb, að ferðast um Evrópu, markverðir staðir, Interrail, hvíldarár, skiptinemar, au pair, samanburður á Íslandi og Danmörku: landafræði, lýðfræði, siðir og venjur, mannleg samskipti, listin að lifa, skólakerfi, lýðháskólar, möguleikar til menntunar.
Námsmat
Námsmat tekur mið af þeirri vinnu sem nemendum er ætlað að inna af hendi samkvæmt námsáætlun og kröfur gerðar í samræmi við það. Meta skal alla færniþætti í hlutfalli við vægi þeirra í kennslunni /náminu. Nemendur eru gerðir ábyrgir fyrir mati að hluta til og þeim gerð grein fyrir því hvað verið er að meta, hvernig, hvenær og hvers vegna. Námsmat getur verið í formi símats eða lokamats.