Bókfærsla
BÓK 213 Tölvubókhald
Undanfari: BÓK 103
BÓK 213 – Tölvubókhald
(undanfari BÓK 103)
Gert er ráð fyrir að nemendur sem hefja nám í þessum áfanga hafi fullt vald á bókhaldshringrásinni, geti hafið bókhald, skráð
færslur og lokað bókhaldi samkvæmt reglukerfi tvíhliða bókhalds. Þessi kunnátta er dýpkuð og tölvutæknin notuð til þess að færa
bókhald eftir fylgiskjölum. Farið er yfir þær kröfur sem gerðar eru til tölvubókhaldskerfa og varðveislu gagna sem notuð eru við
slíkt bókhald. Áhersla er lögð á að nemendur öðlist skilning á hvernig fjárhagsbókhald sækir upplýsingar í birgðabókhald,
viðskiptamannabókhald, sölubókhald og launabókhald. Kynntir eru möguleikar á ýtarlegri skýrslugerð ásamt túlkun og greiningu
upplýsinga. Nemendum er kynnt mikilvægi upplýsingakerfa fyrir stjórnendur í nútíma viðskiptaumhverfi þar sem nákvæmar
upplýsingar í rauntíma nýtast þeim til skilvirkrar ákvarðanatöku. Kennt á Microsoft Dynamics - NAVISION