Fjölmiðlafræði
FJÖ 1036
Inngangur og kynning á helstu kenningum og viðfangsefni fjölmiðlafræðinnar. Fjallað verður um fjögur form nútímafjölmiðlunar: dagblöð, tímarit, ljósvakamiðla og fjölmiðlun innan netheima. Einkenni boðskipta innan hvers fjölmiðils verða skilgreind og þau borin saman í fræðilegu og sögulegu samhengi. Borin verða saman fjöldaboðskipti og einhliða boðskipti, gagnvirk og ógagnvirk. Fjallað verður um áhrif og hlutverk fjölmiðla og þátt þeirra í félagsmótun einstaklinga.
Námsmarkmið: · Að nemendur kynnist fjölmiðlum út frá helstu kenningum um fjölmiðla.
· Að nemendur fái skýra mynd af hlutverki fjölmiðla og kynnist fjölmiðlum í íslensku samfélagi.
· Að nemendur þekki kenningar um boðskipti, markmið, tilgang og áhrifamátt fjölmiðla og þátt þeirra í félagsmótun einstaklinga.
· Að nemendur geti flokkað og aðgreint gerðir fjölmiðlunar og kunni skil á helstu þáttum í sögu fjölmiðlunar.
Lögð verður áhersla á það að nemendur tileinki sér gagnrýna hugsun gagnvart fjölmiðlum og fylgist með því hvernig fjölmiðlar endurspegla atburði líðandi stundar; jafnt heima fyrir sem erlendis.