Tónsmiðja
Tónsmiðja - TÓS1736
Áfangamarkmið:
Myndaðir verða þrír 6 manna hópar sem vinna saman í samspili. Skipting tímanna verður þannig:
1. Samspil undir leiðsögn kennara.
2. Samspil án kennara.
3. Tónheyrn og hljómfræði.
Hljóðfæri sem nemendur geta valið: Bassi, gítar, hljómborð, trommur, söngur,
blásturshljóðfæri og slagverk.
Einhver kunnátta í hljóðfæraleik er skilyrði fyrir skráningu. Gert er ráð fyrir inntökuprófum til að velja nemendur í áfangann, en hámarksfjöldi er 18.