Námsmat og einkunnir
Námsmat og einkunnir
Síðast breytt: 13. febrúar 2012
Nemendur fá kennsluáætlanir í hverjum áfanga þar sem meðal annars er tilgreint hvernig námsmati í áfanganum skuli háttað. Kennarinn útskýrir námsmatið fyrir nemendum en mikilvægt er að öllum sé ljóst til hvers er ætlast.
-
Við lotuskil er námsárangur metinn til einkunnar. Í flestum námsgreinum er leiðsagnarmat án lokaprófs við lotuskil. Í lokaprófsáföngum í próftöflu er einkunn sett saman úr prófþætti og verkefnaþætti.
-
Einkunnir eru gefnar í heilum tölum frá 1 - 10. Í einstaka áfanga eru gefnar einkunnirnar S (staðist), L (lokið) og F (fall) í stað talna ef ekki reynist unnt að gefa einkunn í tölum. Einkunnina H (hættur) fá þeir sem hætt hafa í áfanga eftir að leyfilegur frestur er liðinn en einkunnina F fá þeir sem ljúka ekki áfanga og/eða fara ekki í próf. Einkunnin M (metið) kemur einstaka sinnum fyrir í námsferli þeirra sem fengið hafa nám metið úr öðrum skólum.
-
Til að standast áfanga þarf nemandi að fá einkunnina 4,5 sem meðaltal einkunna úr báðum lotum. Loturnar eru jafngildar. Nemenda er heimilt að útskrifast með einkunnina 4 í tveimur lokaáföngum. Einkunnin 4 gefur ekki einingar.
-
Ef fall í einum áfanga kemur í veg fyrir að nemandi geti útskrifast með lokapróf má hann taka próf í þeim áfanga sem gildir 100%. Skólanum er heimilt að innheimta gjald fyrir slíkt próf.
-
Verði nemandi uppvís að misferli í verkefnavinnu eða prófi fær hann einkunnina 0 fyrir þann hluta. Við endurtekin brot í sama áfanganum er nemandanum vísað úr áfanganum. Skólavist nemandans er í hættu við síendurtekin brot. Ef einn nemandi heimilar öðrum að endurrita verkefni sem hann hefur unnið fá báðir 0 fyrir verkefnið.
-
Í kennsluáætlun fá nemendur upplýsingar um yfirferð og skiladaga stærri verkefna. Nemendum ber að skila öllum verkefnum á tilsettum tíma.
-
Fjarveru úr prófi vegna veikinda þarf að tilkynna á prófdegi. Læknisvottorði þarf að skila við upphaf sjúkraprófs.
-
Til að ljúka námi á ákveðinni námsbraut þarf nemandi að hafa lokið þeim einingafjölda sem tilgreindur er í námskrá.
-
Próftími er 60 mínútur. Nemandi getur óskað eftir frávikum frá prófareglum hjá námsráðgjafa.
-
Í lok hvorrar lotu fá nemendur tækifæri til þess að leita skýringa á námsamti (prófsýning) fyrir auglýstan dag.