Leiðsagnarmat
Leiðsagnarmat í Fjölbrautaskóla Snæfellinga
Námsmat í Fjölbrautaskóla Snæfellinga er ólíkt því sem algengast er í framhaldsskólum að því leyti að stærsti hluti námsmatsins er símat en lítið er um lokapróf eins og hefðbundið er í flestum greinum. Töluverð umræða hefur farið fram innan skólans um breytingar á námsmati og hafa margir kennarar sótt ráðstefnur um námsmat á vegum Samtaka um skólaþróun, bæði í ágúst 2006 og september 2007. Auk þess hafa þrír kennarar skólans sótt námskeið á meistarastigi um sveigjanlega kennsluhætti á vegum Endurmenntunar Háskóla Íslands skólaárið 2007-2008, þar sem töluvert er fjallað um námsmat, og námskeið á meistarastigi um námsmat á vegum Endurmenntunar Háskóla Íslands veturinn 2008-2009. Í framhaldi af umræðunni var ákveðið að leita til King‘s College í London og fræðimanna þar til að halda námskeið fyrir kennarahópinn í FSN. Í King‘s College hafa verið gerðar umfangsmiklar rannsóknir á námsmati og námskeiðið sem þeir héldu fyrir FSN var tveggja daga námskeið í lok maí 2008 þar sem áherslan var á leiðsagnarmat (formative assessment). Í kjölfarið á því hafa verið gerðar breytingar á námsmati í skólanum, fyrst og fremst frá lokaprófum til leiðsagnarmats, og unnið var að þróunarverkefni um leiðsagnarmat veturinn 2008/2009.
Einkenni leiðsagnarmats er að nemandinn er þátttakandi í námsmatsferlinu og leitast er við að gera námsmatið að órjúfanlegum hluta af námi hans. Matið þarf því að vera innbyggt í kennsluna og kennarar gera ráð fyrir námsmati um leið og kennsla er undirbúin. Megintilgangur leiðsagnarmats er að gera nemendur meðvitaða um það sem þeir læra, hvernig þeir læra og til hvers er ætlast af þeim. Leiðsagnarmat byggist á góðri endurgjöf frá kennurum sem nemendur geta nýtt sér til að verða meðvitaðir um eigin námsframvindu, skýrum markmiðum og matsviðmiðum til að nemendur geti vitað til hvers er ætlast af þeim. Nemendur fá tækifæri til að meta eigið nám með sjálfsmati svo þeir skilji tilganginn með námi sínu og hvað þarf til að ná árangri.
Í vetur munu kennarar skólans vinna samkvæmt hugmyndafræði um leiðsagnarmat. Leiðbeinendur verkefnisins eru Berglind Axelsdóttir, Hrafnhildur Hallvarðsdóttir og Sólrún Guðjónsdóttir. Ingvar Sigurgeirsson prófessor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands mun starfa með leiðbeinendum verkefnisins og kennurum í vetur sem rýnir á framkvæmd og árangur.