Námsmat og einkunnir
Námsmat og einkunnir
Síðast breytt: 18.september 2009
Nemendur fá kennsluáætlanir í hverjum áfanga þar sem meðal annars er tilgreint hvernig námsmati í áfanganum skuli háttað. Kennarinn útskýrir námsmatið fyrir nemendum en mikilvægt er að öllum sé ljóst til hvers er ætlast.
Námsmat felur í sér hvers konar mat á námi nemenda og á því er lokaeinkunn í áfanga byggð. Stundum er um að ræða sérstök próf í lok 1. og 2. lotu og vægi lokaprófanna getur að sjálfsögðu verið mismikið. Lagt er mat á vinnu nemenda á önninni og fær nemandinn umsögn fyrir frammistöðu sína eða einkunn. Hvers kyns annarprófum og verkefnum er stundum beitt til að kanna stöðu nemenda en áfangakerfið byggir á þeirri hugmynd að námið sé samfellt ferli í hverjum áfanga í eina önn og ljúki þá gjarnan með prófi sem mæli árangur þessa ferlis.
Einkunnir eru gefnar í heilum tölum frá 1 - 10. Einkunnin 0 er því ekki til. Í einstaka áfanga eru gefnar einkunnirnar S (staðist), L (lokið) og F (fall) í stað talna ef ekki reynist unnt að gefa einkunn í tölum. Einkunnina H (hættur) fá þeir sem hætt hafa í áfanga eftir að leyfilegur frestur er liðinn en einkunnina F fá þeir sem ljúka ekki áfanga og/eða fara ekki í próf. Einkunnin M (metið) kemur einstaka sinnum fyrir í námsferli þeirra sem fengið hafa nám metið úr öðrum skólum.
|
Einkunnin |
1 |
táknar að |
0 |
- |
14% |
námsmarkmiða sé náð |
|
“ |
2 |
“ |
15 |
- |
24% |
“ |
|
“ |
3 |
“ |
25 |
- |
34% |
“ |
|
“ |
4 |
“ |
35 |
- |
44% |
“ |
|
“ |
5 |
“ |
45 |
- |
54% |
“ |
|
“ |
6 |
“ |
55 |
- |
64% |
“ |
|
“ |
7 |
“ |
65 |
- |
74% |
“ |
|
“ |
8 |
“ |
75 |
- |
84% |
“ |
|
“ |
9 |
“ |
85 |
- |
94% |
“ |
|
“ |
10 |
“ |
95 |
- |
100% |
“ |
Til að standast próf í áfanga má einkunn ekki vera lægri en 5, þ.e. nemandi þarf að ná a.m.k. 45% námsmarkmiða. Heimilt er þó að brautskrá nemanda með einkunnina 4 ef um lokaáfanga eða staka áfanga á viðkomandi braut er að ræða, en ekki fást einingar fyrir þá áfanga. Einingatap vegna þessa þarf að bæta upp með öðrum áföngum.
Ef fall í einum áfanga á lokaönn kemur í veg fyrir að nemandi geti útskrifast má hann endurtaka próf í þeim áfanga.
Á hverri önn eru tvær lotur þar sem kennt er í 7 vikur og síðan próf. Á fyrra próftímabilinu eru tekin próf úr námsefni 1. lotu og á því seinna úr námsefni 2. lotu. Hvor lota er metin sjálfstætt og nemendur fá einkunn fyrir hvora lotu og meðaltal þessara tveggja einkunna verður lokaeinkunn áfangans. Þetta þýðir að nemandi sem fær 4 (35-44%) í einkunn í fyrri lotu þarf að fá 6 (55-64%) í einkunn í seinni lotunni til að standast áfangann. Allar lotueinkunnir og lokaeinkunn eru í heilum tölum, en nemendur geta séð námsmatið niðurbrotið í einkunnabókinni í Moodle. Einnig geta nemendur skoðað einkunnir sínar í INNU - upplýsingakerfi framhaldsskólanna, þar er að finna bæði lotueinkunnir og lokaeinkunn.
Vægi verkefna í lokaeinkunn áfanga er mismunandi og er ákveðið fyrirfram og kemur fram á kennsluáætlun. Falli nemandi á lotuprófi er hann fallinn í lotunni, og einkunnir fyrir verkefni í lotunni eru ekki teknar inn í einkunnina.