Íþróttakennsla
Íþróttakennsla
Síðast breytt: 6. maí 2010
Í skólanum er líkamsræktarsalur þar sem íþróttakennsla fer fram. Auk þess er reglulega boðið upp á áfanga eins og útihlaup, knattspyrnu, hnit, golf og skíðaiðkun. Nemendur þurfa að mæta í íþróttir í 19 skipti á hverri önn, eða þrisvar sinnum á hverjum tveimur vikum. Nauðsynlegt er að nemendur mæti í íþróttir jafnt og þétt yfir önnina – ekki verður hægt að vinna upp tíma í lok annar, nema að takmörkuðu leyti. Það er mikilvægt að merkja strax inn á stundatöfluna tíma sem eru lausir fyrir íþróttir. Þeir sem ekki finna tíma fyrir íþróttir á töflunni sinni eru beðnir um að hafa samband við íþróttakennara. Auk þess þurfa allir nemendur að taka einn áfanga í bóklegum íþróttum.
Hér má finna nánari upplýsingar um þá áfanga sem í boði eru hverju sinni.
Hér sést hvenær líkamsræktarsalurinn er opinn.
Undanþágur frá íþróttum
Úr aðalnámskrá:
„Nemandi, sem stundar umfangsmikla líkamsþjálfun á vegum sérsambands og/eða íþróttafélags undir stjórn sérmenntaðs þjálfara, íþróttafræðings eða kennara samhliða námi í framhaldsskóla, getur óskað eftir því að skólameistari veiti honum undanþágu frá vissum áföngum eða áfangahlutum í íþróttum, líkams- og heilsurækt."
Eins og ofangreint undanþáguákvæði ber með sér eru undanþágur frá íþróttum eingöngu ætlaðar þeim nemendum sem stunda mjög umfangsmikla íþróttaþjálfun utan skólans og ekki er talið æskilegt að þeir stundi frekari íþróttaþjálfun. Hægt er að sækja um þess háttar undanþágu í byrjun hverrar annar og er umsóknarfresturinn auglýstur sérstaklega. Nemendur sækja umsóknareyðublöð á skrifstofuna, fá þjálfara til að fylla það út og skila því aftur fyrir auglýstan frest.