Innritun

Innritun nemenda

Síðast breytt: 21. febrúar 2011

Innritun í framhaldsskóla er rafræn, þ.e. sótt er um skólavist á netinu. Umsækjendur þurfa að sækja um veflykil sem opnar þeim persónulegan aðgang að innrituninni. Sótt er um veflykil á menntagatt.is/innritun og kemur hann til baka í tölvupósti. Á sama stað er rafrænt umsóknareyðublað með leiðbeiningum og ýmsar upplýsingar um nám í framhaldsskólum.

Hvaða aðstöðu þarf?

Þar sem innritun fer fram á netinu þurfa nemendur að komast í nettengda tölvu til að geta sótt um. Hægt er að komast í nettengdar tölvur bæði í grunnskólum og framhaldskólum. Allir framhaldsskólar bjóða upp á aðstoð sé hennar óskað.

Þarf að senda eitthvað með umsóknunum?

Nemendur 10. bekkjar þurfa ekki að senda afrit af prófskírteinum úr grunnskóla með umsóknum. Einkunnirnar verða sendar rafrænt til þess skóla sem sótt er um. Vottorð eða sérstakar upplýsingar um nemendur, sem ekki er að finna á rafræna umsóknareyðublaðinu, geta nemendur hengt við umsókn sem fylgiskjal eða sent í pósti til skóla. Aðrir umsækjendur þurfa að senda með umsókn gögn sem ekki eru til staðar í upplýsingakerfi framhaldsskóla (Innu).

Hvar má fá aðstoð og ráðgjöf?

Námsráðgjafar í grunn- og framhaldsskólum þekkja vel til náms á framhaldsskólastigi og eru umsækjendur hvattir til að leita upplýsinga og ráðgjafar hjá þeim. Gott er að vera tímanlega á ferðinni því að maímánuður er mikill annatími í framhaldsskólum.

Nánar um skilyrði innritunar í Fjölbrautaskóla Snæfellinga.

Skólagjöld eru:

Innritunargjald

kr. 6000

Tölvu- og tengigjald

kr. 4750

Pappírsgjald

kr. 2500

Nemendafélagsgjald kr. 3500 (valfrjálst)

Samtals:

kr. 16750

Skólagjöld eru óafturkræf þó nemandi af einhverjum ástæðum hætti við skólavist.

Áfangagjald
Nemendur í dreif-/fjarnámi greiða sérstakt innritunargjald að upphæð 10.750 kr. Að auki greiða nemendur í dreifnámi áfangagjald, 10.000 kr. fyrir hvern áfanga sem þeir eru skráðir í (gildir ekki um grunnskólanemendur). Sjá nánar hér.

 

 





 

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur