Innritun

Innritun nemenda

Haustönn 2010

Innritun í framhaldsskóla fyrir haustönn 2010 er rafræn, þ.e. sótt er um skólavist á netinu. Umsækjendur þurfa að sækja um veflykil sem opnar þeim persónulegan aðgang að innrituninni. Sótt er um veflykil frá og með 1. apríl á menntagatt.is/innritun og kemur hann til baka í tölvupósti. Á sama stað er rafrænt umsóknareyðublað með leiðbeiningum og ýmsar upplýsingar um nám í framhaldsskólum.

Innritun nemenda úr 10. bekk grunnskóla (fæddir 1994 eða síðar)

Forinnritun verður 12.-16. apríl. Þá eiga nemendur að velja aðalskóla og annan til vara. Nemendur í tilteknum grunnskólum eiga forgang að skólavist í ákveðnum framhaldsskólum hafi þeir staðist inntökuskilyrði. Þeim er hins vegar frjálst að sækja um hvaða skóla sem er. Nemendur geta endurskoðað val sitt 7.-11. júní en þá daga berst framhaldsskólum lokavitnisburður grunnskóla um frammistöðu þeirra. Foreldrar/forráðamenn nemenda í 10. bekk fá bréf frá mennta- og menningarmálaráðuneyti þar sem gerð er grein fyrir fyrirkomulagi innritunarinnar.

Almenn innritun eldri nemenda

Innritun eldri nemenda (fæddir 1993 eða fyrr) hefst 20. apríl og henni lýkur 11. júní.

Hvaða aðstöðu þarf?

Þar sem innritun fer fram á netinu þurfa nemendur að komast í nettengda tölvu til að geta sótt um. Hægt er að komast í nettengdar tölvur bæði í grunnskólum og framhaldskólum. Allir framhaldsskólar bjóða upp á aðstoð sé hennar óskað.

Þarf að senda eitthvað með umsóknunum?

Nemendur 10. bekkjar þurfa ekki að senda afrit af prófskírteinum úr með umsóknum. Einkunnirnar verða sendar rafrænt til þess skóla sem sótt er um. Vottorð eða sérstakar upplýsingar um nemendur, sem ekki er að finna á rafræna umsóknareyðublaðinu, geta nemendur hengt við umsókn sem fylgiskjal eða sent í pósti til skóla. Aðrir umsækjendur þurfa að senda með umsókn gögn sem ekki eru til staðar í upplýsingakerfi framhaldsskóla (Innu).

Hvar má fá aðstoð og ráðgjöf?

Námsráðgjafar í grunn- og framhaldsskólum þekkja vel til náms á framhaldsskólastigi og eru umsækjendur hvattir til að leita upplýsinga og ráðgjafar hjá þeim. Gott er að vera tímanlega á ferðinni því að maímánuður er mikill annatími í framhaldsskólum.

Nánar um skilyrði innritunar í Fjölbrautaskóla Snæfellinga.

Skólagjöld á haustönn 2010 eru:

Innritunargjald

kr. 6000

Tölvu- og tengigjald

kr. 4750

Pappírsgjald

kr. 2500

Nemendafélagsgjald kr. 3500

Samtals:

kr. 16750

Áfangagjald
Auk skólagjalda greiða nemendur í dreifnámi áfangagjald, 12.000 kr. fyrir hvern áfanga sem þeir eru skráðir í (gildir ekki um grunnskólanemendur). Áfangagjaldið fá dreifnámsnemendur síðan endurgreitt að fullu þegar þeir hafa tekið lokapróf eða fengið annars konar lokamat úr áfanganum. Sjá nánar hér.

 

 





 

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur

Minna letur Stærra letur