Nám og kennsla
Kennsluhættir í Fjölbrautaskóla Snæfellinga
Síðast breytt: 19. ágúst 2007
Fjölbrautaskóli Snæfellinga er framhaldsskóli með sveigjanlegt og nýstárlegt námsfyrirkomulag þar sem námsrýmin eru opin og allt nám er skipulagt með aðstoð kennsluumsjónarkerfis. Frá stofnun skólans árið 2004 hefur hann verið leiðandi í breyttum kennsluháttum og í nýtingu upplýsingatækni í skólastarfi. Þar af leiðandi tekur skipulag kennslunnar mið af þessu tvennu. Meginmarkmiðið með því að breyta kennsluháttum er að nám nemendanna verði skilvirkara – að þeir nái betri tökum á námsefninu. Með þetta að leiðarljósi eru notaðar aðferðir við kennsluna sem rannsóknir hafa sýnt að virka betur en hefðbundnar aðferðir. Þessar aðferðir eiga það allar sameiginlegt að megináherslan er á að nemendur séu sjálfir virkir í náminu þar sem það hefur komið í ljós að bestur árangur næst og nemendur læra mest þegar þeir þurfa að vinna í námsefninu (learning by doing) og finna lausnir (problem-based learning/lausna- og leitarnám). Upplýsingatæknin er nýtt á margvíslegan hátt í náminu og fléttast inn í alla þætti skólastarfsins.
Staðbundin kennsla
Öll kennsla í skólanum fer fram með dreifnámssniði þar sem skiptast á hefðbundnar kennslustundir, vinnustundir og verkefnatímar. Moodle-kennsluumsjónarkerfið er notað til að skipuleggja kennsluna og halda utan um allar upplýsingar fyrir hvern áfanga þannig að þær eru aðgengilegar alla önnina. Nemendur skila verkefnum í gegnum Moodle og taka oftast próf þar einnig. Kennarar stýra vinnu nemenda og eru til aðstoðar bæði í hefðbundnum tímum og verkefnatímum. Nám nemenda fer aðallega fram með verkefnavinnu og vinna þeir ýmist einstaklingsverkefni eða hópverkefni. Leitast er við að hafa verkefnavinnuna bæði fjölbreytta og skapandi og munu kennarar og nemendur hafa aðgang að viðeigandi búnaði í þeim tilgangi.
Gestakennarar
Gestakennarar kenna tiltekna áfanga við skólann og er fyrirkomulag þeirrar kennslu með svolítið öðru sniði en staðbundna kennslan. Moodle er þó notað á sama hátt í þessari kennslu þannig að verkefnaskil og námsmat er með svipuðum hætti. Í stað hefðbundinna kennslustunda og verkefnatíma koma gestakennarar í skólann 2-4 sinnum yfir önnina, hitta nemendur sína og skipuleggja námið með þeim. Að öðru leyti verða gestakennarar í tengslum við nemendur sína í gegnum Moodle (tölvupóstur, spjallþræðir) og einnig munu þeir nýta sér annars konar tækni, s.s. fjarfundabúnað og MSN-samskiptaforritið.
Tvær lotur á önn
Hverri önn er skipt í tvær lotur þar sem í hvorri lotu verður kennt í 7 vikur. Í lok fyrri lotunnar eru kennslu- og prófadagar í eina viku þar sem kennt er áfram í símatsáföngum en prófað er í öðrum áföngum. Seinni lotunni lýkur síðan með prófum í fjóra daga.
Skipulag stundatöflu
Stundataflan er í megindráttum skipulögð þannig að í henni skiptast á hefðbundnar kennslustundir og verkefnatímar. Kennsla hefst kl. 8:30 á morgnana og lýkur kl. 16:00 nema á föstudögum kl. 14:55.