Úrsögn úr áföngum
Úrsögn úr áföngum
Síðast breytt: 28. febrúar 2011
Skráning nemenda í próf og brottfall frá námi
Um leið og nemandi skráir sig í áfanga samþykkir hann þá tilhögun námsmats sem námsgreininni fylgir og birt er í kennsluáætlun. Í upphafi hverrar annar er auglýstur frestur til breytinga á skráningu og stundatöflum.
Úrsögn úr áföngum á hasutönn 2011
Á vorönn 2011 hafa nemendur frest til 5. september til að segja sig úr áföngum. Þeir sem óska eftir að segja sig úr áfanga eru beðnir að hafa samband við skrifstofu skólans. Eftir 6. september hafa nemendur ekki leyfi til að hætta í áfanga og hafa skuldbundið sig til að ljúka áfanganum og mæta í próf. Komi upp einhverjar óviðráðanlegar aðstæður sem gera það að verkum að nemendur telja sig þurfa að hætta í áfanga eru þeir beðnir um að tala við námsráðgjafa eða stjórnendur.
Endurinnritunargjald
Greinarmunur er gerður á skráningu þeirra sem hætta fyrir tilskilinn tíma og hinna sem koma ekki til prófs, uppfylla ekki kröfur símats eða standast ekki prófkröfur. Þeir sem hætta í einstökum áföngum eða í skólanum eftir að auglýstur frestur er liðinn greiða sérstakt endurinnritunargjald sem innheimt er samkvæmt reglugerð menntamálaráðuneytisins ( 614/2009 614/2009 ). Þeir sem standast ekki kröfur um símat eða prófkröfur greiða einnig endurinnritunargjald. Skólameistari getur veitt undanþágu frá þessum ákvæðum ef aðstæður nemanda breytast, t.d. vegna langvarandi veikinda, slysfara eða vegna dauðsfalla í fjölskyldunni.