Stöðupróf
Stöðupróf
Síðast breytt: 21. febrúar 2011
Tilgangur stöðuprófa er að gera viðkomandi kleift að sanna þekkingu sína í tiltekinni grein eða á tilteknu sviði. Með þessum hætti geta nemendur fengið viðurkennda þekkingu og reynslu sem þeir búa yfir og ekki hefur verið aflað með hefðbundnum hætti í skóla og stytt þannig námstíma sinn til lokaprófs. Þeir sem gangast undir stöðupróf greiða kostnað vegna prófanna. Mennta- og menningarmálaráðuneytið felur framhaldsskólum framkvæmd stöðuprófa. Stöðupróf verða haldin a.m.k. einu sinni á ári í bóklegum og verklegum greinum eftir því sem tilefni er til. Nemendur skólans taka stöðupróf í Menntaskólanum við Hamrahlíð og eru þau venjulega haldin í ágúst og desember-janúar ár hvert.