Prófareglur
Prófareglur
Nemendur skulu mæta í próf það tímanlega að þeim gefist tími til að finna rétt rými áður en prófið byrjar. Veikindi og önnur forföll skal tilkynna á skrifstofu skólans áður en próf hefjast eða eins fljótt og kostur er. Nauðsynlegt er að skila veikindavottorði á skrifstofuna við fyrsta tækifæri.
- Í upphafi prófs skulu nemendur ganga úr skugga um:
- að prófgögn þeirra séu rétt.
- að þeir séu á réttum stað.
- að á borðum þeirra séu ekki önnur hjálpargögn en þau sem tilgreind eru á forsíðu prófsins.
- að þeir hafi skilið eftir allt sitt hafurtask svo sem pennaveski, poka, töskur og bækur fyrir utan rýmið eða í umsjá yfirsetukennara. Sérstaklega er vakin athygli á því að ekki er leyfilegt að vera með GSM-síma í prófi.
- Yfirsetukennarar mega ekki svara neinum spurningum varðandi sjálf prófin en þeir kalla til kennara viðkomandi ef þörf krefur.
- Nemendum er óheimilt að ávarpa hver annan í prófum og eiga að gefa þeim kennurum sem yfir sitja merki með handauppréttingu ef þeir þurfa á hjálp að halda.
- Enginn má yfirgefa prófstofu fyrr en prófi lýkur nema með leyfi prófstjóra. Yfirsetukennari gefur þó leyfi til salernisferða.
- Nemendum ber að yfirgefa prófstofu tafarlaust er próftíma lýkur og skilja ÖLL blöð eftir á borðunum. Ef framlengja þarf próf tilkynnir kennari hópsins þann tíma sem við er bætt.
- Nemendur sem mæta of seint til prófs verða að yfirgefa prófstofur á sama tíma og aðrir. Undanþágu frá þessu ákvæði geta prófstjórar veitt.
- Verði nemandi uppvís að prófsvikum eða broti á prófreglum er prófstjóri kallaður til og ákvarðar hann hvort nemandanum skuli vísað frá prófi. Skólaráð ákvarðar um frekari viðurlög.