Próf
Próf
Tvö próftímabil - reglur um lotupróf
Á hverri önn eru tvö próftímabil, eftir 1. lotu og eftir 2. lotu. Á fyrra próftímabilinu eru tekin próf úr námsefni 1. lotu og á því seinna úr námsefni 2. lotu.
Próftafla - próf
Próftafla liggur að jafnaði fyrir a.m.k. tveimur vikum fyrir upphafstíma prófa. Nemendur skulu athuga með góðum fyrirvara hvar þeir eiga að vera í hverju prófi (auglýst sérstaklega) og mæta síðan stundvíslega til prófs. Komi nemandi of seint til prófs skal hann snúa sér til prófstjóra og fer afgreiðsla málsins eftir ástæðum seinkomunnar. Nemendur skulu kynna sér fyrirfram hjá kennara, þ.e. áður en kennslu lýkur hvaða hjálpargögn eru leyfileg í prófinu.
Próf á pappír
Nemandi gengur úr skugga um að hann sé með rétt próf í höndunum og að ekki vanti neinar blaðsíður í prófið. Nemendur mega ekki yfirgefa rýmið sem prófað er í fyrr en klukkustund er liðin. Prófúrlausnir skal skilja eftir á borðum og sér yfirsetukennari um að safna þeim saman.
Próf í tölvu
Nemendur mæti í próf 10 mínútum fyrir auglýstan prófatíma til að ræsa tölvur og skrá sig inn í Angel. Allir nemendur þurfa að hafa Angel Secure Browser í tölvunum sem þeir taka prófið í. Þegar nemandi lýkur prófi á hann að slökkva á tölvunni um leið. Nemendur mega ekki yfirgefa rými fyrr en klukkustund er liðin.
Veikindi í prófum
Komist nemandi ekki í próf vegna veikinda ber honum að tilkynna það samdægurs á skrifstofuna, og skrá sig í viðkomandi sjúkrapróf. Nemandi sem skráir sig síðar á ekki rétt á próftöku. Enginn fær að þreyta sjúkrapróf nema hann skrái sig og framvísi læknisvottorði. Sjúkrapróf eru haldin í lok hvors prófatíma.
Svindl í prófum
Nemendur sem staðnir eru að því að nota óleyfileg gögn eða veita eða þiggja hjálp í prófum, umfram það sem heimilað er, hafa fyrirgert rétti til prófs í viðkomandi áfanga eða öllum prófum á viðkomandi önn skv. nánari ákvörðun skólaráðs.
Prófsýning og réttur nemenda
Eftir að einkunnir hafa verið birtar nemendum skulu kennarar gefa þeim kost á að yfirfara úrlausnir sínar á prófsýningardegi skólans. Ef fram kemur skekkja í mati eða einkunnagjöf skal slíkt leiðrétt. Ef nemandi telur einkunnagjöf kennara ósanngjarna á hann rétt á að vísa málinu til aðstoðarskólameistara innan þriggja daga frá prófsýningardegi. Kæra vegna prófa þarf að vera skrifleg og rökstudd. Aðstoðarskólameistari hlutast þá til um, að höfðu samráði við kennara, að hlutlaus prófdómari meti úrlausn nemandans. Úrskurður prófdómara skal gilda.
Leiðrétting einkunna
Fyrir getur komið að kennari gefi ranga einkunn, leggi vitlaust saman eða sjáist yfir verkefni. Kennari sér til þess að einkunnin sé leiðrétt í samráði við aðstoðarskólameistara og mun nemandinn þá fá nýtt einkunnablað.
Varðveisla prófúrlausna
Prófúrlausnir eru geymdar í eitt ár. Hið sama á við um próf/verkefni í símatsáföngum.