Inntökuskilyrði
Inntökuskilyrði
Síðast breytt: 21. febrúar 2011
Allir sem lokið hafa námi í grunnskóla samkvæmt lokamarkmiðum aðalnámskrár eða öðru jafngildu námi eiga kost á að hefja nám við Fjölbrautaskóla Snæfellinga. Inntökuskilyrði á einstakar brautir eru talin upp hér á eftir.
Inntökuskilyrði á almenna braut:
Almenn braut (AB) er ætluð nemendum sem ekki hafa gert upp hug sinn varðandi val á námsbraut og þeim sem ekki uppfylla inntökuskilyrði á aðrar námsbrautir og þurfa að bæta undirbúning sinn í bóklegum greinum. Auk þess sem mikil áhersla er lögð á góð vinnubrögð og jákvæð viðhorf til náms. Almenn braut veitir nemendum undirstöðuþekkingu í kjarnagreinum, upplýsingatækni og listgreinum.
Nemendur sem uppfylla ekki inntökuskilyrði inn á stúdentsbraut innritast inn á almenna braut.
|
Félagsfræðabraut |
Málabraut |
Náttúrufræðibraut |
||||
|
Lágmark skólaeinkunnar |
Lágmark skólaeinkunnar |
Lágmark skólaeinkunnar |
||||
|
Íslenska |
6 |
6 |
|
6 |
|
|
|
Stærðfræði |
6 |
|
6 |
|
6 |
|
|
Danska |
6 |
|
||||
|
Enska |
6 |
|
6 |
|
6 |
|
|
Samfélagsgr. |
6 |
|
||||
|
Náttúrufræði |
6 |
|
||||
Félagsfræðabraut veitir nemendum góða almenna undirstöðuþekkingu í bóklegu námi með áherslu á samfélagsgreinar.
Náttúrufræðibraut veitir nemendum góða almenna undirstöðuþekkingu í bóklegum greinum með áherslu á sérsvið náttúruvísinda.
Málabraut veitir nemendum góða almenna undirstöðuþekkingu í bóklegum greinum með áherslu á erlend tungumál.