Dreifnám
Dreifnám
Síðast breytt: 30. janúar 2012
Dreifnám
Leiðbeiningar og reglur um dreifnám í Fjölbrautaskóla Snæfellinga
Almennt um dreifnám
Nemendum yngri en 18 ára stendur ekki til boða að gerast dreifnemendur við FSN. Skólinn er með sérstöku sniði að því leyti að mikil áhersla er á verkefnamiðaðar námsaðferðir þar sem nemendur eiga að vera virkir og kennarar vinna mikið sem verkstjórar og leiðbeinendur. Þetta form hentar vel fyrir þá nemendur sem ekki eiga þess kost að sækja skólann daglega. Þeir nemendur sem eru skráðir í dreifnám geta þó mætt að vild í skólann! Hér er hægt að finna meiri upplýsingar um kennsluhætti skólans: /namogkennsla/
Dreifnemar eiga rétt á því að:
- kennarar séu með MSN opið verkefnatímum (allt að 4 klst. á viku)
- kennarar skólans svara tölvupósti innan sólarhrings á skrifstofutíma
- kennsluáætlun áfangans er á Moodle ásamt ítarlegum fyrirmælum frá viku til viku
Dreifnemar greiða skólagjöld kr. 10.750, en auk þess greiða þeir áfangagjald kr. 10.000 fyrir hvern áfanga sem þeir eru skráðir í.
|
Innritunargjald |
kr. 6000 |
|
Tölvu- og tengigjald |
kr. 4750 |
|
Dreifnámsgjald |
kr. 10000 hver áfangi |
|
Samtals: |
kr. 10750 + dreifnámsgjald |
Nauðsynleg tölvuþekking
Dreifnemar í FSN þurfa að vera tölvulæsir. Það felur í sér að þeir geti unnið á netinu, notað tölvupóst og hafi lágmarksþekkingu í algengustu tölvuforritum, s.s. word, excel og powerpoint. Dreifnemendur eru einnig hvattir til að nýta sér námskeið í notkun kennslukerfis skólans sem haldið er í upphafi hverrar annar. Nemendum er auk þess bent á að kynna sér ýmsar grunnupplýsingar í áfanga sem heitir Moodle-nemendaáfangi og er aðgengilegur fyrir alla nemendur inni í kennslukerfinu.