Á döfinni
Útivistardagur
Miðvikudaginn 23. september
Dagskrá útivistardags verður sem hér segir:
Fyrir hádegi:
8:30 –Mæting í vinnustofur samkvæmt stundaskrá þar sem er merkt við.
8:45 – 09:30 Matsalur: Hafragrautur – Morgunleikfimi - Skráning
9:30 – 11:30
Fótbolti (Uppi á fótboltavelli við grunnskólann)
(Hacky sack http://www.youtube.com/watch?v=o-8tatHXJHw – þau sem eiga bolta komi með hann með sér – t.d. ef þrjú lið þá getur eitt liðið æft sig í hacky á meðanJ)
Körfubolti (völlur við FSN)
Blak
Gömlu góðu leikirnir (brennó, stórfiskaleikur, fallin spýta, feluleikur, lögga og bófi)
Ganga með Lilju
Það má fara á milli stöðva á þeim 2 tímum sem um ræðir.
11:30 - 12:10 Hádegismatur
Eftir hádegi:
12:20 – 14:20 - Ratleikur
14: 30 Rútur heim.
Stöndum öll saman um að gera útivistadaginn að frábærum degi.
Höfum gaman saman á heilsusamlegan hátt – það eykur einfaldlega hamingjuna!
(þetta er frá námsráðgjafanumJ)