Á döfinni
Skólaakstur í Framhaldsdeild á Patreksfirði.
Óskað er eftir tilboði í skólaakstur fyrir Framhaldsdeild Fjölbrautaskóla Snæfellinga á Patreksfirði veturinn 2009-2010. Ekið er með nemendur alla virka daga til Patreksfjarðar frá Tálknafirði og til baka. Skóladagur hefst kl. 8:30 og lýkur kl. 16:10, nema á föstudögum, þá lýkur skóladegi kl. 15:05. Auk þess eru farnar ferðir til Grundarfjarðar einu sinni í mánuði og þá þarf akstur fyrir alla nemendur framhaldsdeildarinnar. Ekið er frá Patreksfirði eftir hádegi á þriðjudegi í ferjuna á Brjánslæk og sækja þarf nemendur á Brjánslæk eftir hádegi á föstudegi og aka þeim til baka til Patreksfjarðar og Tálknafjarðar. Annar daglegur akstur fellur niður þá daga. Nemendur frá Tálknafirði eru 11 og heildarfjöldi nemenda er um 30.
Tilboð óskast send til Skúlínu Hlífar Kjartansdóttur, skólameistara, á netfang: skulina@fsn.is eða í pósti: Fjölbrautaskóli Snæfellinga, Grundargötu 44, 350 Grundarfjörður. Frestur til að skila inn tilboðum er til 7. ágúst 2009.
Skólameistari